Telur ósennilegt að álver rísi hér á næstu árum Þorbjörn Þórðarson skrifar 23. júlí 2013 18:30
Álverð er sögulega mjög lágt um þessar mundir en á þessari töflu frá London Metal Exchange má sjá verðþróun frá 1. júní 2007 og til dagsins í dag. Eins og sést hefur verðið fallið verulega að undanskilinni snarpri hækkun sem varð 2011. Í myndskeiði má svo sjá birgðastöðu áls í heiminum þrjátíu ár aftur í tímann, frá Bloomberg. Álbirgðir hafa aukist gríðarlega frá árinu 1978 og til dagsins í dag. Birgðastaðan nam rúmlega milljón tonna um síðustu aldamót en nemur í dag 5,4 milljónum tonna. Á meðan framboð áls er jafn mkið og raun ber vitni má ekki búast við að verðið hækki mikið.Eftirspurnin eftir áli er ekki að aukast Hvaða ályktanir má draga um þróun áliðnaðarins og framtíðarhorfur í ljósi þessa? Ketill Sigurjónsson er lögfræðingur sem hefur sérhæft sig sig í auðlindalöggjöf og regluverki raforku- og áliðnaðarins. „Það blasa ekki við vísbendingar um að eftirspurn eftir áli aukist á allra næstu árum. Það virðist til dæmis heldur vera að hægja á vextinum í Kína til dæmis og ástandið annars staðar gefur ekki vísbendingu um að eftirspurn eftir áli sé að aukast," segir Ketill.Leiðir ekki af eðli máls að það er þá frekar óskynsamlegt að ráðast í frekari uppbyggingu álvera á meðan eftirspurn eftir afurðinni er jafn lítil og raun ber vitni? „Þeir sem byggja álver þeir eru held ég mjög ólíklegir til að gera það nema þeir fái raforkuna einhvers staðar á svo góðu verði að það standi undir því álverði sem við höfum séð undanfarið. Það þýðir að það er mjög ólíklegt að það verði byggt álver á Íslandi á næstu árum."Sættu sig ekki við að greiða samkeppnishæft verð fyrir raforkuna Ágætt er að setja þessi ummæli í samhengi við Helguvíkurverkefnið, en álverið þar hefur ekki risið því ekki hefur náðst samkomulag milli Norðuráls og HS Orku um raforkuverð, en fyrirtækin tvö hafa tekist á fyrir gerðardómi um bæði afhendingu raforkunnar og raforkuverðið. Þá lét Alcoa Fjarðaál vinna hagkvæmniathugun á byggingu 250.000-346.000 tonna álveri á Bakka við Húsavík fyrir nokkrum árum. Þau áform runnu út í sandinn m.a því fyrirtækið taldi að það fengi ekki nægilega gott verð hjá Landsvirkjun fyrir raforkuna, þá lá jafnframt ekki fyrir með nægilega skýrum hætti hvort raforkan yrði afhent á réttum tíma en fyrirtækið hafði stefnt á byggingu álvers á þessu ári.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira