Sala á farsímum tvöfaldast milli ára 11. júní 2013 14:09
Landsmenn kaupa farsíma sem aldrei fyrr. Í síðasta mánuði voru farsímar keyptir fyrir 69,1% hærri upphæð en í sama mánuði fyrir ári. Á sama tíma lækkaði verð á farsímum samkvæmt verðmælingum Hagstofunnar um 16%, sem felur í sér að raunvelta í sölu farsíma tvöfaldaðist á milli ára. Þetta kemur fram í yfirliti frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að ástæðan fyrir þessum mikla vexti er að snjallsímar eru í auknum mæli að taka við af eldri gerðum farsíma. Að sögn söluaðila komu á markað í síðasta mánuði tvær nýjar gerðir af snjallsímum sem höfðu í för með sér mikla endurnýjun. Jafnframt hinni hröðu tækniþróun á farsímamarkaði, sem felur meðal annars í sér að netnotkun fer í auknum mæli í gegnum símtækin, lækkar verð á eldri gerðum farsíma mjög hratt eða hætt er að selja þær. Ætla má að þessi mikla endurnýjun, þar sem eldri gerðir hverfa af markaði, torveldi nokkuð verðsamanburð á sambærilegum tækjum á milli ára, að því er segir í yfirlitinu. Sala á mat og drykkjarvöru er nokkuð stöðug að raunvirði þegar horft er yfir lengra tímabil. Velta dagvöruverslana síðustu 12 mánaða var 0,9% meiri að raunvirði en 12 mánuði þar á undan. Á sama tímabili jókst raunvelta áfengis um 0,3%. Þá hafa ekki orðið miklar breytingar í sölu á öðrum sérvörum eins og fötum og skóm.
Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Fjárfestingararmur Samherja bætir við sig í Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Sjá meira