Áfram dregur úr almennum lánum ÍLS en vanskil minnka 13. júní 2013 09:25
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) í maí s.l. námu einum milljarði króna, en þar af voru 530 milljónir króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í maí í fyrra um 890 milljónum króna. Meðalfjárhæð almennra lána var 9,9 milljónir króna. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins fyrir maí mánuð. Þar segir að heildarvelta íbúðabréfa nam um 38,1 milljarði króna í maí samanborið við 28,3 milljarða í apríl 2013. Greiðslur Íbúðalánasjóðs vegna íbúðabréfa og annarra skuldbindinga námu 670 milljónum króna í maí. Uppgreiðslur námu 1,3 milljörðum króna. Í lok mánaðarins hafði hlutfall lána í vanskilum einstaklinga enn lækkað frá því að vanskil í lánasafni Íbúðalánasjóðs náðu hámarki í júlí síðastliðnum. Í lok maí nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga 4,8 milljörðum króna og var undirliggjandi lánavirði 84,5 milljarðar króna eða um 12,75% útlána sjóðsins til einstaklinga. Þetta samsvarar 0,29% lækkun frá fyrra mánuði og var undirliggjandi hlutfall lánafjárhæðar í vanskilum í lok maí 1,01% lægra en sama hlutfall í maí 2012. Heimili í vanskilum eru 4.519 og þar af eru 640 heimili með frystingu á lánum sínum. Alls voru því 8,96% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í lok maí 2013. Fjárhæð vanskila útlána til lögaðila nam alls 3,0 milljörðum króna og nam undirliggjandi lánavirði 31,6 milljörðum króna. Tengjast því vanskil um 21,35% lánafjárhæðar sjóðsins til lögaðila, sem samsvarar 1,09% lækkun frá fyrri mánuði og er 0,51% lægra hlutfall en í lok maí 2012. Vanskil eða frystingar ná samtals til 14,33% lánasafnsins, en sambærilegt hlutfall í maí 2012 nam 15,24%.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Sjá meira