Þú þolir þetta ákveðið lengi Ellý Ármanns skrifar 22. apríl 2013 14:30 Sigga Lund hætti í útvarpi í byrjun árs 2012. Þá opnaði hún vefinn Siggalund.is. Kolbrún sagði starfi sínu lausu í morgun og hefur ekki ákveðið hvað hún ætlar að gera.
Útvarpskonan Kolbrún Björnsdóttir sagði starfi sínu lausu í dag eftir sex ár í morgunþættinum Í bítið á Bylgjunni vegna vinnutímans eins og lesa má hér en þátturinn er á dagskrá eldsnemma á morgnana eða klukkan 06:50. Við höfðum samband við Siggu Lund útvarpskonu sem hefur svipaða reynslu nema á öðrum vettvangi, FM 957. Sigga stjórnaði morgunþættinum Zúúber ásamt Sigvalda Kaldalóns og Gassa Ólafssyni lengi vel en sá þáttur var í léttari kantinum.Kostir og gallar ,,Ég var náttúrulega í morgunþættinum Zúúber í 5 ár svo ég hef reynsluna af þessum vinnutíma en ég get ekki sagt neitt slæmt um það að byrja vinnuna eldsnemma. Þetta hefur sannarlega sína kosti og það hefur sannarlega sína galla," segir Sigga og heldur áfram:Æðislegur tími ,,Mér persónulega fannst árin í Zúúber æðislegur tími. Það gaf mér mikið að hafa verið partur af þessu teymi á sínum tíma. Fyrir mig voru kostirnir fleiri en gallarnir. Þú byrjar fyrr og ert því búin fyrr í vinnunni en að sjálfsögðu voru kvöldin ekki þín. Þú þurftir að fara að snemma að sofa til að allt fúnkeri sem skyldi sem var erfitt fyrir mig þar sem ég er næturhrafn að eðlisfari. Það var oft erfitt að vakna."Gott að losna undan pressunni ,,En ég man þegar ég hætti í Zúúber fann ég hvað það var gott að losna undan pressunni að þurfa ekki að fara að sofa extra snemma og það var gott að sofa aðeins lengur," útskýrir Sigga.Þú þolir þetta ákveðið lengi ,,En það er þannig með þetta eins og allt - þetta hefur allt sinn líftíma. Þú þolir þetta ákveðið lengi held ég. Þessi vinnutími krefst aga og í raun stimplar þú þig aldrei úr vinnunni. Þú ert alltaf með augu og eyru opin fyrir efnistökum og því sem er að gerast."Svali sótti Siggu þegar snjóaði ,,Og eitt sem ég man. Það er ekki búið að ryðja götur svona snemma á veturna. Það gat verið ansi erfitt að komast til vinnu um hávetur. Svali kom stundum á jeppanum og sótti mig þegar þannig stóð á," segir Sigga þegar hún rifjar upp gömlu góðu tímana þegar hún vann með Svala og Gassa í útvarpi.Siggalund.is
Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Fleiri fréttir Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“