Innlent

Húsasmiðjan verður að afhenda sérstökum saksóknara ráðningasamninga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Meint verðsamráð er enn til rannsóknar.
Meint verðsamráð er enn til rannsóknar.
Hæstiréttur hefur staðfest kröfu sérstaks saksóknara um að Húsasmiðjunni verði gert að afhenda sérstökum saksóknara afrit af ráðningarsamningum nokkurra starfsmanna fyrirtækjanna.

Kröfu um að Húsasmiðjan myndi afhenda tilteknar fundargerðir stjórnar var hins vegar hafnað. Málið tengist rannsókn sérstaks saksóknara og Samkeppniseftirlitsins á meintu verðsamráði Byko, Húsasmiðjunnar og Úlfsins á meintu verðsamráði.

Rannsóknin hefur staðið yfir í á þriðja ár en hátt í fjörutíu manns voru handteknir vegna rannsóknarinnar árið 2011 og húsleitir gerðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×