Bréf Samherja: Léttir að málið er komið til sérstaks saksóknara 18. apríl 2013 09:49 Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson.
Þeir Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson æðstu stjórnendur Samherja hafa sent starfsfólki sínu bréf í kjölfar þess að Seðlabankinn hefur vísað karfaviðskiptum fyrirtækisins til sérstaks saksónara. Í bréfinu segja þeir Þorsteinn og Kristján að það sé léttir fyrir þá að þetta hafi gerst og vonandi sýni sérstakur meiri fagmennsku en yfirmenn og rannsakendur Seðlabanka Íslands hafa gert.Bréfið í heild hljómar svo:„Rannsókn Seðlabanka Íslands á karfaviðskiptum Samherja hefur verið send embætti Sérstaks saksóknara.Lögfræðingur Seðlabanka Íslands hefur tjáð Samherja hf. að bankinn hafi vísað máli því sem hann hefur haft til rannsóknar í 13 mánuði til embættis Sérstaks saksóknara. Það er léttir af þessum tíðindum og vonandi verður þetta til þess að málinu ljúki hið fyrsta.Augljóst er af þeim gögnum sem Seðlabanki Íslands hefur lagt fyrir dómstóla að bankinn hefur byggt málið á rangfærslum og vanþekkingu á rekstri Samherja hf. Vonast er til að þeir sem skoða málið hjá embætti Sérstaks saksóknara sýni meiri fagmennsku en yfirmenn og rannsakendur Seðlabanka Íslands hafa gert.Samherji hf. vekur athygli á því að á þeim 13 mánuðum sem liðnir eru frá því Seðlabanki Íslands hóf rannsókn á málinu, hefur enginn verið yfirheyrður og ekki hefur verið leitað neinna skýringa á þeim gögnum sem haldlögð voru í upphafi. Það vekur því furðu að Seðlabanki Íslands meti stöðuna þannig nú að frekari rannsóknar sé þörf af hálfu annars embættis.Samherji hf. er sem fyrr tilbúinn til að veita alla þá aðstoð og upplýsingar um málið sem óskað er eftir, enda ljóst að hagsmunir félagsins eru þeir að málinu ljúki sem allra fyrst.Forstjóri Samherja sagði opinberlega í byrjun árs að hann teldi að Seðlabankinn myndi vísa málinu til Sérstaks saksóknara og að það yrði gert um miðjan apríl, þar sem seðlabankastjóri hefði ekki aðra útgönguleið í málinu vegna þess á hvaða forsendum stofnað var til þess. Engum að óvörum hjá Samherja hefur þetta nú komið á daginn!Fyrst í liðinni viku fékk Samherji afhent gögn sem Seðlabanki Íslands lagði fram í Hæstarétti Íslands í maí á síðasta ári en hélt leyndum fyrir Samherja, sem er fáheyrt milli málsaðila fyrir Hæstarétti.Í þessum gögnum grípur Seðlabanki Íslands til nýrra reiknikúnsta og dregur af þeim ályktanir sem eru jafn rangar og þær sem lágu að baki beiðni bankans um húsleitarheimild.Í línuriti sem Seðlabanki Íslands lagði fram í Hæstarétti máli sínu til stuðnings, sýnir bankinn samanburð á karfaverði Samherja og stærsta útflytjanda á karfa frá Íslandi. Línuritið sýnir að verð þessara tveggja útflytjenda er mjög svipað, fyrir utan löng tímabil þar sem verðið er hærra hjá Samherja...Á því tímabili sem greiningin nær til, veiddu skip Samherja 17.000 tonn af karfa, þar af voru um 3.000 tonn flutt út fersk til Þýskalands. Um helmingur þess magns eða um 1.500 tonn voru veidd af Snæfelli EA á fjögurra mánaða tímabili í kringum áramótin 2009/2010. Á því tímabili var mikil birgðasöfnun hjá Samherja í frosnum karfa og verð höfðu lækkað mikið. Með því að selja karfann ferskan fékkst hærra verð heldur en hefði fengist fyrir sjófrystan. Í mars breyttust aðstæður á mörkuðum aftur til hins betra, birgðir minnkuðu og skipið fór aftur að frysta karfa.Annar ferskur karfi sem veiddur var af skipum Samherja fékkst aðallega sem meðafli þegar veiðistýring við þorskveiðar gaf svigrúm til annarra veiða.Á árunum 2009 – 2011 fiskuðu Björgúlfur og Björgvin um 33.000 tonn, þar af voru innan við 4% ferskur karfi.Í kjölfar húsleitar Seðlabankans óskaði Samherji eftir fundi með gjaldeyriseftirlitinu. Haldinn var einn fundur, meðal annars til að fá leiðbeiningar um það hvernig innflutningur á fiski frá tengdum aðilum skyldi verðlagður. Framkvæmdastjóri gjaldeyriseftirlitsins gaf þær leiðbeiningar að menn ættu að kaupa á sem lægstu verði og selja á sem hæstu. Þegar framkvæmdastjóranum var bent á að það myndi stangast á við lög í Þýskalandi, þaðan sem Samherji hafði verið að kaupa fisk, sagði framkvæmdastjórinn að hann varðaði ekki um það. Þetta lýsir kannski umhverfinu sem við búum við í dag.Sem fyrr segir er það léttir fyrir Samherja að nú sé loksins komin hreyfing á þetta mál eftir 13 mánuði.
Samherji og Seðlabankinn Mest lesið Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Atvinnulíf Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Gugga fer í fyrirtækjarekstur Viðskipti innlent Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Viðskipti innlent Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Viðskipti innlent Slangur, menning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli kynslóða Atvinnulíf Icewear Garn opnar í Kringlunni Samstarf Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Samstarf Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Viðskipti innlent Fleiri fréttir Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert „Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Sjá meira