Lánadrottnar Skipta tapa miklu Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. apríl 2013 11:39 Steinn Logi Björnsson er forstjóri Skipta. Mynd/ Valli.
Óveðtryggðir lánadrottnar Skipta, móðurfélags Símans, mega búast við því að tapa hátt í 30% af kröfum sínum, samkvæmt mati Arctica Finance hf., ráðgjafa félagsins við endurskipulagningu á fjármálum þess. Tillaga Skipta um endurskipulagningu skulda félagsins liggur fyrir, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar og vonast félagið til þess að allir kröfuhafa samþykki tillöguna. Í tilkynningu til Skipta vegna endurskipulagningarinnar segir að hún hafi ekki áhrif á almenna viðskiptamenn og birgja Skipta heldur eingöngu Arion banka sem lánveitanda félagsins og eigendur skuldabréfa sem skráð eru í kauphöll undir heiti SIMI 06 01. Meginatriði endurskipulagningartillögunnar eru svohljóðandi: Í fyrsta lagi, endurgreiðir Skipti hverjum og einum kröfuhafa (miðað við skráða kröfuhafa kl. 16:30 þann 27.mars 2013) kr. 2.000.000 í reiðufé o kemur greiðslan til lækkunar höfuðstóls viðkomandi kröfu. Í öðru lagi að öllum kröfum samkvæmt skuldabréfunum verður breytt eða skipt fyrir hlutafé í Skiptum. Í þriðja lagi að öllum kröfum Arion banka hf. sem ekki eru hluti af núverandi forgangsláni félagsins, verði breytt eða skipt fyrir hlutafé í Skiptum. Í fjórða lagi felur tillagan í sér að forgangslán félagsins verði endurfjármagnað að fullu með annars vegar láni frá Arion banka hf. að fjárhæð um kr. 19 milljarðar og hins vegar með útgáfu skuldabréfaflokks að fjárhæð um kr. 8 milljarðar, eða annarri fjármögnun. Er gert ráð fyrir að framangreindar ánveitingar verði tryggðar með fyrsta veðrétti í helstu eignum Skipta hf. og dótturfélögum þess. „Arctica Finance hf., ráðgjafar félagsins, hafa metið endurheimtur óveðtryggðra kröfuhafa sem 72,3% af uppreiknuðum höfuðstól krafna. Peningagreiðslan eykur þar að auki endurheimtur kröfuhafa allt upp í 78,7% fyrir þá kröfuhafa sem eiga eina einingu í skuldabréfaflokknum SIMI 06 01. Upphafleg fjárhæð skuldabréfaflokksins var kr. 14 milljarðar en er verðbættur höfuðstóll í dag um kr. 23 milljarðar. Hafa eigendur skuldabréfaflokksins fengið kr. 8,4 milljarða greidda í vexti á tímabilinu. Virði þess hlutafjár sem óveðtryggðir skuldabréfaeigendur fá nú í sinn hlut er kr. 16,6 milljarðar að mati Arctica Finance," segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Sjá meira