Valitor hlaut tvenn verðlaun á hátíð í London 13. febrúar 2013 09:25 Starfsfólkið að baki verðlaunum Valitor.
Valitor hlaut tvöfalda viðurkenningu fyrir framsæknar lausnir á alþjóðlegu verðlaunahátíðinni Card and Payment Awards sem fram fór í London í síðustu viku. Í tilkynningu segir að hátíðin sé hin stærsta sinnar tegundar í Evrópu og njóti virðingar meðal fagfólks í fjármálageiranum. Alls voru um 1.500 gestir á hátíðinni en á henni voru verðlaunaðir þeir aðilar og þau verkefni sem þykja hafa skarað fram úr á Bretlandi og Írlandi síðastliðið ár á sviði korta- og greiðslulausna, en sérstök áhersla er lögð á snjalla útfærslu hugmynda og nýsköpun. Útgáfuverkefni Valitor voru tilnefnd í tveimur flokkum, Corporate Pay fyrir bestu fyrirtækjalausnina og Citizen Card fyrir besta nýja verkefnið á sviði fyrirframgreiddra korta. Niðurstaðan varð sú að Valitor sigraði í báðum þessum flokkum. Að mati óháðra sérfræðinga bar CitizenCard af sem besta nýjungin á sínu sviði og Corporate Pay þótti skara fram úr á sviði fyrirtækjalausna en um er að ræða sýndarlausn þar sem Valitor er bæði útgefandi og vinnsluaðili Visa korta. „Þetta er frábær árangur hjá okkar fólki. Tuttugu sérfræðingar Valitor hafa unnið að þessum verkefnum undanfarin þrjú ár í sérstöku þróunar- og markaðsteymi og viðtökur markaðarins við afurðunum hafa verið framar okkar vonum," segir Viðar Þorkelsson forstjóri Valitor í tilkynningunni.
Mest lesið „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Happy Hydrate seldi fyrir 302 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Sjá meira