Ekstra Bladet: AZ Alkmaar býður 278 milljónir í Aron Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2013 11:15 Aron Jóhannsson Mynd/AGF
Danska Ekstra Bladet skrifar um það í dag að hollenska félagið AZ Alkmaar hafi mikinn áhuga á því að kaupa íslenska framherjann Aron Jóhannsson frá danska úrvalsdeildarfélaginu AGF og hafi þegar gert tilboð í leikmanninn. Aron Jóhannsson var á dögunum orðaður við pólska félagið Lech Poznan en ekkert varð að því að hann færi þangað. Það virðist hinsvegar vera talsvert meiri líkur á því að Aron endi hjá AZ ef marka má frétt Ekstra Bladet. AZ Alkmaar á að hafa boðið 12 milljónir danskra króna í Aron sem eru um 278 milljónir íslenskra króna en auk þess getur sú tala farið upp í 15 milljónir nái Aron ákveðnum markmiðum með AZ-liðinu. Aron Jóhannsson er annar af tveimur markahæstu mönnum dönsku úrvalsdeildarinnar með 14 mörk í 18 leikjum en danska deildin er nú í vetrarfríi. AZ Alkmaar er þekkt Íslendingalið en landsliðamaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson spilar með því í dag og landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson sló þar í gegn á sínum tíma áður en hann var seldur til Ajax Amsterdam.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira