Skuldatryggingaálagið ekki lægra frá hruni - ánægjulegt segir ráðherra Magnús Halldórsson skrifar 3. janúar 2013 12:32 Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra.
Skuldatryggingaálag á Ísland hefur farið lækkandi undanfarin misseri og hefur ekki verið lægra frá hruni. Álagið er nú ríflega 1,8 prósentustig, en það ræður miklu um á hvaða vaxtakjörum íslenska ríkið og íslensk fyrirtæki geta nálgast lánsfé í útlöndum. Skuldatryggingaálag segir til um hvert vaxtaálag er á skuldir, og því lægra sem það er því betri lánskjör bjóðast á markaði. Álagið upp á 180 punkta þýðir að það kostar 1,8 prósent af nafnverði skuldabréfs til fimm ára að tryggja það gegn greiðslufalli. Lánsfjármarkaðir erlendis hafa verið nær algjörlega lokaðir íslenskum fyrirtækjum frá því um ári fyrir hrun fjármálakerfisins haustið 2008. Ástæðurnar fyrir erfiðu aðgengi að lánsfé eru fjölþættar, meðal annars vantraust á mörkuðum eftir hrun fjármálakerfisins gagnvart Íslandi. Þetta hefur meðal annars endurspeglast í háu skuldatryggingaálagi. Á undanförnum vikum og mánuðum hefur skuldatryggingaálagið á Ísland lækkað nokkuð hratt. Skömmu fyrir jól fór það í 184 punkta, eða sem nemur einu komma áttatíu og fjögurra prósenta álag á lánskjör sem í boði eru á markaði. Álagið hefur ekki verið lægra frá hruni fjármálakerfisins, en í upphafi árs 2009 var það meira en 1000 punktar, eða sem nemur 10 prósentustigum. Það þýðir í reynd algjör lokun á lánsfjármörkuðum vegna þess hve lánskjör eru slæm. Frá þeim tíma hefur það lækkað smátt og smátt, og hefur ríkissjóður í tvígang sótt sér lánsfé á markað. Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnhagsráðherra, segir að lækkun á álaginu séu ánægjuleg tíðindi fyrir ríkissjóð og hjálpi til við öflun lánsfjár, sem getur bætt sjóðsstýingu ríkissjóðs og dregið úr vaxtakostnaði. "Þetta skiptir miklu máli fyrir ríkissjóð. Aðalatriðið er þó að tryggja til langs tíma opna fjármagnsmarkaði fyrir Ísland og íslensk fyrirtæki. Það er ánægjulegt að álagið hafi verið að lækka og fara í rétt átt, en það skiptir mestu að lánsfjármarkaðir verði opnir til lengri tíma."
Mest lesið Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Viðskipti innlent Gagnrýna seinagang olíufélaganna og ýja að samráði Neytendur Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Forstjóri Kaldvíkur látinn af störfum í samráði við stjórn Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Kaldvíkur látinn af störfum í samráði við stjórn Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Sjá meira