Real sló Barcelona út á Nývangi - Ronaldo með tvö Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2013 21:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Barcelona vinnur ekki þrennuna í ár því liðið féll í kvöld út úr spænska bikarnum eftir 1-3 tap á heimavelli á móti erkifjendunum í Real Madrid. Real Madrid vann því 4-2 samanlagt og er komið áfram í undanúrslit keppninnar. Cristiano Ronaldo skoraði fyrstu tvö mörk Real Madrid í leiknum en hann hefur skoraði í síðustu sex leikjum sínum á Nývangi, heimavelli Barcelona. Barcelona-liðið er í lægð þessa dagana en liðið var fyrir leikinn búið að spila 22 heimaleiki í röð án þess að tapa. Barcelona byrjaði vel og Lionel Messi fékk gott færi eftir 90 sekúndur. Börsungar voru mun meira með boltann en Real Madrid beitti skeinuhættum skyndisóknum með góðum árangri. Cristiano Ronaldo kom Real Madrid í 1-0 úr vítaspyrnu á 13. mínútu eftir að Gerard Pique felldi hann í teignum. Lionel Messi var nálægt því að jafna í lok fyrri hálfleiks en aukaspyrna hans fór rétt framhjá. Ronaldo bætti við öðru marki sínu á 57. mínútu eftir frábæra skyndisókn. Lionel Messi tapaði boltanum og Ronaldo skoraði auðveldlega eftir sendingu frá Angel Di Maria. Raphael Varane, sem jafnaði metin í fyrri leiknum, skoraði síðan þriðja mark Real Madrid á 68. mínútu þegar hann skallaði inn hornspyrnu Mesut Özil. Jordi Alba minnkaði muninn fyrir Barcelona á 89. mínútu eftir sendingu frá Andrés Iniesta en það var hvergi nóg því liðið þurfti þrjú mörk til viðbótar.
Fótbolti Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Sjá meira