Verðlaun afhent í HR 20. mars 2013 16:59
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, afhentu í dag verðlaun Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur í rannsóknum, kennslu og þjónustu. Rannsóknarverðlaun HR í ár hlýtur Dr. Anna Ingólfsdóttir, prófessor við tölvunarfræðideild HR. Anna er forstöðumaður vísinda við ICE-TCS þekkingarsetur innan tölvunarfræðideildar HR og leiðir rannsóknarhóp um samsíða ferli. Rannsóknir hennar eru á sviði fræðilegrar tölvunarfræði, reiknilíkana og rökfræði í tölvunarfræði. Í tilkynningu frá HR segir að við val á rannsóknarverðlaunum HR sé litið til birtinga rannsókna á alþjóðlegum vettvangi, öflun styrkja, framlag til rannsóknarstarfs háskólans, áhrif á nemendur og unga rannsakendur og þátttöku í uppbyggingu rannsóknarsetra. „Það var mat nefndar eftir að tilnefningar lágu fyrir að Anna væri vel að verðlaununum komin enda hefði hún verið í fremstu röð vísindamanna Háskólans í Reykjavík í mörg ár. Hún hefur verið í efsta flokki í rannsóknarmati frá upphafi og hefur á síðustu fimm árum birt 53 ritrýndar greinar, átt þátt í níu styrkjum til skólans og hefur leiðbeint fimm nýdoktorum og þremur doktorsnemum," sagði Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík við athöfnina fyrr í dag. Þá hlaut Halldór Halldórsson, dósent við tölvunarfræðideild HR, kennsluverðlaun HR. Halldór hefur kennt við háskólann í fjölda ára og átt stóran þátt í uppbyggingu hans. Halldór hefur einkum kennt línulega algebru, strjála stærðfræði, stöðuvélar og reiknanleika og tölulega greiningu. Nemendur HR senda inn tilnefningar til kennsluverðlauna en nefnd innan skólans ákvarðar hver hlýtur verðlaunin. Handhafi þjónustuverðlauna HR árið 2013 er Guðrún Gyða Ólafsdóttir, móttökustjóri HR. Við val á handhafa þjónustuverðlauna var litið til gæða þjónustu, frumkvæðis, tengsla við starfsfólk og nemendur og niðurstöður úr þjónustukönnun. Verðlaun HR eru veitt á hverju ári og er markmið með þeim að hvetja kennara og starfsfólk háskólans til nýsköpunar, þróunarstarfs, rannsókna og framúrskarandi þjónustu.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira