Dekkin ekki endurskoðuð fyrr en eftir Barein Birgir Þór Harðarson skrifar 2. apríl 2013 16:45 Starfsmenn Pirelli og Ferrari rannsaka og hagræða notuð dekk í Malasíu.
Ítalski dekkjaframleiðandinn Pirelli, sem sér öllum keppnisliðunum í Formúlu 1 fyrir dekkjum, ætlar ekki að endurskoða nálgun sína þetta árið fyrr en að kappakstrinum í Barein loknum. Flest liðin eru mjög ósátt með dekkin sem þau hafa fengið þetta árið. Fremstir í flokki óánægðra liða eru Red Bull sem segja dekkin einfaldlega of viðkvæm fyrir Formúlu 1. Ökumenn séu of takmarkaðir af endingargetu dekkjanna og þurfa að eyða of mikilli orku í að halda líftíma þeirra í hámarki. Spurður út í þessa gagnrýni segir Paul Hembery, mótorsportstjóri hjá Pirelli, vandamál liðanna sjálfra skekkja myndina af dekkjunum. Pirelli sé samt sem áður að íhuga að breyta gúmmíinu ef mótin færu að verða leiðinleg vegna dekkjanna. „Ég helda ð við verðum að vera ánægðir með þessi dekk," sagði Hembery. „Tvö stórlið eiga greinilega í vandræðu með dekkin milli ökuþóra sinna og kannski gerði það að verkum að keppnin varð ekki spennandi í Malasíu."
Formúla Mest lesið Kolbeinn er WBF heimsmeistari Sport „Draumar rætast“ Fótbolti Fékk draum sinn uppfylltan og heiðraði minningu látinnar dóttur sinnar Fótbolti Stúkan: „Bera virðingu fyrir leiknum og andstæðingnum“ Íslenski boltinn Benedikt hættur með Tindastól Körfubolti Enrique hluti af fámennum hópi ótrúlegra sigurvegara Fótbolti PSG verðskuldaður sigurvegari Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Ísak í einkaflugi út að semja við erkifjendurna Fótbolti Féll næstum því í Harvard vegna höfuðverkjanna Fótbolti Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City Enski boltinn Fleiri fréttir Piastri á ráspól Hamilton segir sögusagnir um ósætti vera þvaður Norris vann í Mónakó í fyrsta sinn Lando Norris hrifsaði til sín ráspólinn á elleftu stundu Verstappen tók fram úr á fyrsta hring og fagnaði sigri Hrikalegur árekstur Tsunoda, nýtt áfall fyrir Ferrari og Piastri fremstur Hamilton: „Dæmið okkur eftir nokkur ár“ Var í lífstíðarbanni en er nú aftur orðinn liðsstjóri í Formúlu 1 Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð Sjá meira