Niðurfelling eykur á þenslu 22. október 2013 19:34
Niðurfelling á húsnæðisskuldum einstaklinga getur haft veruleg þensluaukandi áhrif hvort sem um ræðir beina endurgreiðslu eða lækkun höfuðstóls, að mati sérfræðinga Seðlabankans. Í næsta mánuði á nefnd undir forystu dr. Sigurðar Hannessonar að kynna úrræði vegna niðurfellingar á verðtryggðum húsnæðislánum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er vinna nefndarinnar á áætlun og er stefnt að því að skila tillögum í síðari hluta nóvember sem yrði hægt að framkvæma um mitt næsta ár. Margir sem eru eða voru með verðtryggð lán bíða spenntir, enda um að ræða stærsta kosningaloforð Framsóknarflokksins. Þetta loforð framsóknarmanna hefur verið undirorpið gagnrýni. Bæði á þeirri forsendu að leiðin sem þeir vilja fara sé óframkvæmanleg og að slík innspýting fjár í hagkerfið til heimilanna ýti undir þenslu og verðbólgubál þannig að ávinningurinn af niðurfærslunni hverfi jafnóðum. Betur sé þá heima setið en af stað farið. Í Efnahagsmálum nr. 5, sérriti Seðlabankans sem kom út í dag segir: Niðurfelling á húsnæðisskuldum einstaklinga getur einnig haft veruleg þensluaukandi áhrif. Á það jafnt við hvort sem um ræðir beina endurgreiðslu, sem skilar sér beint í auknum ráðstöfunartekjum í dag, eða lækkun höfuðstóls, sem leiðir til aukinna ráðstöfunartekna í framtíðinni. Leiði slíkar aðgerðir til aukinnar verðbólgu yrði Seðlabankinn að bregðast við með auknu aðhaldi sem gæti leitt til hækkunar jafnvægisatvinnuleysis. Seðlabankinn yrði því að beita hagstjórnartækjum til að hafa taumhald á verðbólgunni eftir slíka aðgerð. Niðurfærsla á húsnæðisskuldum heimilanna er pólitískt eldfimt mál. Fréttastofan hafði samband við þrjá fræðimenn í hagfræði vegna málsins í dag til þess að fá viðbrögð við því almennt hvaða áhrif það hefði á efnahagslífið ef húsnæðisskuldir yrðu færðar niður í einu vetvangi um tugi ef ekki hundruði milljarða króna. Enginn þeirra gaf kost á viðtali.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent