Telja Samkeppniseftirlitið helstu ógn Haga VG skrifar 27. júní 2012 13:36 Samkeppniseftirlitið.
Greiningadeild Arion banki telur að helst ógn Haga sé ekki samkeppni, heldur ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins og nýfengnar heimildir eftirlitsins. Þannig segir í mati greiningadeild Arion banka, sem unnin var eingöngu fyrir fagfjárfesta, og Vísir hefur greint frá, að mat Samkeppniseftirlitsins geti litast af ýmsu, en ekki sé ólíklegt að dreift eignarhald á félaginu rói eftirlitið eitthvað, eins og það er orðað í mati bankans. Í matinu er bent á að Hagar hafa þurft að punga út rúmlega 600 milljónum króna vegna stjórnvaldssekta síðustu árin. „Að einhverju leyti hefur Samkeppniseftirlitið því andað vel ofan í hálsmálið á félaginu," eins og segir í matinu, sem er ekki ætlað almenningi, heldur aðeins fagfjárfestum. Þá er greint frá því í matinu að á síðasta ári voru heimildir Samkeppniseftirlitsins auknar, en eftirlitið hefur nú víðtækar heimildir til inngripa í starfsemi fyrirtækja án þess að brot hafi átt sér stað. Greiningadeild Arion banki lítur því svo á að Hagar starfa í umhverfi sem getur í einhverjum tilfellum verið ófyrirsjáanlegt og háð mati eftirlitsstofnana á hverjum tíma. Til að mynda er aldrei hægt að útiloka að eftirlitið beiti sér fyrir því að tiltekinn rekstur verði brotinn upp í smærri einingar eða seldur út. greiningadeild Íslandsbanka virðist hafa minni áhyggjur af Samkeppniseftirlitinu, en bendir á að einn stór áhættuþáttur fyrirtækisins sé dómsmál Haga gegn Arion banka vegna ágreinings um útreikningar gengistryggðra lána sem félagið greiddi upp í lok október 2009. Hagar fengu greiddar rúmlega hálfan milljarð í desember 2011 vegna endurútreiknings þessara lána og var sú fjárhæð notuð til niðurgreiðslu vaxtaberandi skulda gagnvart Arion. Hagar telja sig eiga frekari kröfu á Arion í kjölfar dóms Hæstaréttar um miðjan febrúar sl. og nemur krafa Haga því 824 milljónum miðað við stöðuna 29. febrúar 2012. Ef dómur fellur Högum í vil hækkar verðmatsgengi Haga um 0,7 að öðru óbreyttu samkvæmt mati Íslandsbanka. Eins og fram kom í fyrri frétt Vísis af málinu þá ber nokkuð á milli í niðurstöðum þessara mata. Þannig ráðlagði greining Íslandsbanka fjárfestum að selja bréf sín á meðan Arion banki mælir með því að viðskiptavinir kaupi hlut í Högum. Arion banki álítur svo að virði hlutafjár Haga séu 24 milljarðar króna. Miðað við gengið 17, sem greining Íslandsbanka nefnir í sinni fyrirtækjagreiningu sem virðismatsgengi, er virði hlutafjár tæplega 20 milljarðar. Þarna munar því fjórum milljörðum á greiningum bankanna.
Tengdar fréttir Íslandsbanki ráðlagði sölu á Haga bréfum en Arion banki kaup Töluverður munur er á ráðgjöf greiningar Íslandsbanka annars vegar og greiningar Arion banka hins vegar fyrir fjárfesta, þegar kemur að hlutafé í Högum. Í greiningu frá 25. maí sl., þegar gengi bréfa Haga var 18,95, ráðlagði greining Íslandsbanka fjárfestum að selja bréf sín, og var verðmatsgengið áætlað vera 17, en gengi bréfa félagsins miðað við stöðuna við opnun markaða í morgun er 18. 27. júní 2012 12:15 Mest lesið Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Sjá meira
Íslandsbanki ráðlagði sölu á Haga bréfum en Arion banki kaup Töluverður munur er á ráðgjöf greiningar Íslandsbanka annars vegar og greiningar Arion banka hins vegar fyrir fjárfesta, þegar kemur að hlutafé í Högum. Í greiningu frá 25. maí sl., þegar gengi bréfa Haga var 18,95, ráðlagði greining Íslandsbanka fjárfestum að selja bréf sín, og var verðmatsgengið áætlað vera 17, en gengi bréfa félagsins miðað við stöðuna við opnun markaða í morgun er 18. 27. júní 2012 12:15