Íslandsbanki ráðlagði sölu á Haga bréfum en Arion banki kaup Magnús Halldórsson skrifar 27. júní 2012 12:15
Töluverður munur er á ráðgjöf greiningar Íslandsbanka annars vegar og greiningar Arion banka hins vegar fyrir fjárfesta, þegar kemur að hlutafé í Högum. Í greiningu frá 25. maí sl., þegar gengi bréfa Haga var 18,95, ráðlagði greining Íslandsbanka fjárfestum að selja bréf sín, og var verðmatsgengið áætlað vera 17, en gengi bréfa félagsins miðað við stöðuna við opnun markaða í morgun er 18. Mánuði síðar, eða 25. júní, sl. sendi greining Arion banka frá sér fyrirtækjagreiningu á Högum og verðmat félagið á töluvert hærra gengi en Íslandsbanki, eða 20,45. Sama dag keypti A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hlut í Högum, jók við hlut sinn úr 4,85 prósent í 6,32 prósent. Samanlagður hlutur Lífeyrissjóða Bankastræti 7, þ.e. bæði A og B deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, er nú 10,82 prósent. Munurinn á fyrirtækjagreiningum bankanna er umtalsverður, þegar horft er til markaðsvirðis Haga. Miðað við gengið 20,45, sem Arion banki álítur verða virðismatsgengi, er virði hlutafjár Haga 24 milljarðar króna. Miðað við gengið 17, sem greining Íslandsbanka nefnir í sinni fyrirtækjagreiningu sem virðismatsgengi, er virði hlutafjár tæplega 20 milljarðar. Nefnt er í greiningum Íslandsbanka og Arion banka á Högum, að greiningarnar séu ekki ætlaðar almenningi, og er sérstaklega tekið fram að þær séu einungis ætlaðar fagfjárfestum, og að hvorki megi afrita efnið, vitna í það né dreifa því, án skriflegs leyfis viðkomandi greiningadeilda. Ritstjórnarlegt mat fréttastofu er það að greiningarnar eigi erindi við almenning, og eru þær birtar í fylgiskjölum hér að neðan í heild sinni.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Sjá meira