Viðskipti innlent

Glacier Securities ráðgjafi í stóru jarðhitaverkefni í Bandaríkjunum

Dótturfyrirtæki Íslandsbanka, Glacier Securities, sem sérhæfir sig í verkefnum á sviði jarðvarma í Bandaríkjunum, er ráðgefandi aðili í umfangsmiklu jarðvarmaverkefni í Nevada í Bandaríkjunum en viljayfirlýsing vegna þess var undirrituð í gær samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka.

Verkefnið hefur verið í undirbúningi í langan tíma og hafa starfsmenn Glacier unnið að því með samningsaðilum og nýtt sérþekkingu sína á þessu sviði. Hjá Glacier starfa sjö manns í New York og á Íslandi sem hafa víðtæka þekkingu og reynslu á sviði fjármögnunar og ráðgjafar í jarðvarmaverkefnum og sjávarútvegi, m.a. í Bandaríkjunum, Chile og víðar.

Verkefnið sem um ræðir snýst um 15 milljón dollara lánveitingu frá Geothermal Regional Center (GRC) til U.S. Geothermal Inc. (USG) vegna þróunar og uppbygginu á orkuveri í San Emido í Nevada í Bandaríkjunum.

Verkefnið sem um ræðir snýst um 15 milljón dollara lánveitingu frá Geothermal Regional Center (GRC) til U.S. Geothermal Inc. (USG) vegna þróunar og uppbygginu á orkuveri í San Emido í Nevada í Bandaríkjunum.

Fjármunanna verður aflað í gegnum EB-5 Immigrant Investor Pilot Program, en það er kerfi sem sett er upp af yfirvöldum í Bandaríkjunum og snýst um að laða að erlenda fjárfesta í skiptum fyrir atvinnu og dvalarleyfi í Bandaríkjunum (græna kortið). Áætlað er að verkefnið muni auka raforkuframleiðslu í Bandaríkjunum um 17,1 megavött og skapa fjölda starfa.

Hlutverk Glacier Securities var að vera ráðgefandi um val á verkefni sem ráðist yrði í fyrir þá fjármuni sem er aflað í gegnum EB-5 kerfið, en þetta er í fyrsta sinn sem þessu kerfi og aðferðarfræði er beitt við þróun og fjármögnun á jarðhitaverkefnum í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×