Olíuvinnslu Noregs við Jan Mayen verði þjónað frá Íslandi Kristján Már Unnarsson skrifar 13. apríl 2012 20:00
Fyrirtækin sem nú undirbúa þjónustumiðstöð á Íslandi vegna olíuborana stefna að því að hún þjóni einnig fyrirhugaðri olíuleit Norðmanna á Jan Mayen-hryggnum. Þórshöfn og Vopnafjörður koma enn til greina. Ráðamenn breska fyrirtækisins Asco telja að fyrsti borpallurinn geti verið kominn á Drekasvæðið eftir tvö til þrjú ár og eru, í samstarfi við Olíudreifingu, þegar byrjaðir að leggja drög að þjónustumiðstöð á Íslandi með gerð viljayfirlýsingar í vikunni um hafnirnar á Akureyri, Húsavík og Reyðarfirði. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær að þeir eru einnig með í huga að geta þjónað olíuiðnaði við Austur-Grænlands frá Íslandi og þá segir Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar ehf. að markmiðið sé einnig að þjónusta þá olíuleit og vinnslu sem Norðmenn áforma við Jan Mayen. Tvö ár eru frá því norsk stjórnvöld hófu af krafti undirbúning olíuleitar á sínum hluta Jan Mayen-hryggjarins en um leið friðlýstu þau eyjuna Jan Mayen, sem gæti tryggt Íslandi allan þjónustuþáttinn. En hvað ræður vali á þjónustuhöfn? Lengd siglingaleiðar skiptir þar mestu, segja fulltrúar Olíudreifingar og Asco, svo fremi að aðrar forsendur séu til staðar; góð hafnaraðstaða og margskyns þjónusta, eins og hótelrými fyrir starfsmenn. Sú spurning vaknar hvort staðir eins og Þórshöfn og Vopnafjörður séu of litlir til að þjónusta olíuleit? Svo þarf ekki að vera, segir Runar Hatletvedt, yfirmaður Asco í Norður-Evrópu, í viðtali á Stöð 2 og segir norðurausturhornið ekki útilokað. Hörður segir að Asco-menn eigi eftir að koma aftur til landsins og rætt verði við fulltrúa sveitarfélaga eins og Vopnafjarðar.
Mest lesið „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Innlent Fleiri fréttir Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Sjá meira