Brátt gengið frá sölu á Actavis 18. apríl 2012 06:30 Actavis hefur umfangsmikla starfsemi í Hafnarfirði en höfuðstöðvar fyrirtækisins voru fluttar til Sviss árið 2011. Fréttablaðið/Arnþór
Viðræður um sölu á Actavis til bandaríska lyfjafyrirtækisins Watson eru langt komnar. Samkvæmt frétt Reuters um málið er ráðgert að tilkynnt verði um kaupin í lok þessa mánaðar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa viðræðurnar staðið yfir um nokkra hríð en stærsti eigandi Actavis er Björgólfur Thor Björgólfsson. Í frétt Reuters segir að Watson vinni nú að því að afla sér lánsfjár upp á 6 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 760 milljarða króna, til að ganga frá kaupunum. Þá hefur Reuters eftir heimildum að Watson muni ekki eiga í teljandi vandræðum með að ganga frá fjármögnun kaupanna. Loks greinir Reuters frá því að reiknað sé með að af þessum 6 milljörðum dala verði 2 milljarðar í formi langtímalána en 4 milljarðar í formi brúarláns og skuldabréfs. Watson er bandarískt samheitalyfjafyrirtæki sem er eitt hið stærsta sinnar tegundar í heimi. Einn af æðstu stjórnendum fyrirtækisins er Sigurður Óli Ólafsson sem var forstjóri Actavis á árabilinu 2008 til 2010.- mþl
Mest lesið Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Innlent Bein útsending: Minningarathöfn Charlie Kirk Erlent Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Innlent Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ Innlent Telur áform ráðherra vanhugsuð Innlent Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Innlent Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Innlent Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Innlent Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Innlent Fleiri fréttir „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ „Dreifbýlið hefur alltaf haft áhyggjur af því að fjármagnið sogist til þéttbýlisins“ Þorgerður Katrín endurkjörin Frítt í Strætó á Bíllausa deginum á morgun Hefur farið 100 sinnu á fjall á Fljótshlíðarafrétti Viðreisn verður áfram bara Viðreisn Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Sjálfstæð Palestína, væringar í Framsókn og fækkun um eitt sveitarfélag Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Sjá meira