Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu ekki verið rædd í nefndinni Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. apríl 2012 22:04 Birgir Ármannsson er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórnskpunar- og eftirlitsnefnd. mynd/ stefán
Ný tillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis og Guðmundar Steingrímssonar um að þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fari fram í haust hefur ekki verið rædd í nefndinni. Þetta segir Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni. Hann segir þó að tillagan komi ekki á óvart, en upphaflega vildi meirihlutinn að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram samhliða forsetakosningum. Ekki náðist samkomulag um þá tillögu þegar um hana var rætt í lok mars. „Ég átti von á því að einhver tillaga í þessa veru kæmi fram miklu fyrr," sagði Birgir. Hann segir að afstaða sjálfstæðismanna varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu stjórnlagaráðs sé nokkuð skýr. „Við höfum frá upphafi verið þeirrar skoðunar að það væri út í bláinn að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur sem ekki eru fullbúnar og höfum alltaf talið að það væri eðlilegri röð á hlutunum að þingið ynni með tillögurnar og léti fara yfir þær á faglegum og fræðilegum forsendum áður en efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu en ekki eftir að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram," segir Birgir. „Það er alveg ljóst að það er meirihluti fyrir þessu í þinginu," segir Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Aðspurð segir hún ekkert hafa verið leitað eftir samkomulagi við minnihlutann um málið. „En yfirleitt er það þannig að mál í þinginu eru útkljáð í atkvæðagreiðslu ef það er ekki samkomulag. Ég á þá von á því að það verði þannig í þessu nema að eitthvað annað gerist," segir Valgerður.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Sjá meira