Nýjasta og óvæntasta stjarna NBA-deildarinnar í beinni í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2012 19:00 Jeremy Lin. Mynd/Nordic Photos/Getty
Það þekktu ekki margir körfuboltaáhugamenn nafnið Jeremy Lin fyrir rúmri viku en á aðeins nokkrum dögum er þessi 23 ára bandaríski strákur ættaður frá Tævan orðin nýjasta og óvæntasta stjarna NBA-deildarinnar. Lin verður í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld þegar lið hans New York Knicks tekur á móti Los Angeles Lakers í Madison Square Garden en leikur liðanna hefst klukkan eitt eftir miðnætti. New York Knicks vann aðeins 2 af 13 leikjum frá 12. janúar til 3. febrúar en hefur unnið þrjá leiki í röð eftir að Mike D'Antoni henti Jeremy Lin inn í byrjunarliðið sitt. Það eru margir á því að Jeremy Lin hafi hreinlega bjargað starfi D'Antoni enda með 25,3 stig og 8,3 stoðsendingar að meðaltali í þessum þremur leikjum þegar liðið spilaði án stjörnuleikmannanna Carmelo Anthony og Amar'e Stoudemire. Jeremy Lin var ekki með öruggan samning í síðasta mánuði og þessi strákur sem útskrifaðist með flotta einkunn úr Harvard fékk þá að gista á sófanum hjá bróður sínum á meðan að barðist fyrir samningi hjá New York. Sá samningur er nú í höfn og áhuginn á þessum hógværa strák hefur nú farið upp úr öllu valdi. Það hefur ekki gengið allof vel hjá Kobe Bryant og félögum í Los Angeles Lakers í vetur en liðinu hefur hinsvegar spilað mjög vel í Madison Square Garden undanfarin ár. Knicks-liðið hefur alls tapað níu leikjum í röð á móti Lakers þar af fjórum í röð í MSG. Bryant hefur skorað 40 stig að meðaltali í þessum fjórum leikjum í Madison Square Garden.
NBA Mest lesið Guðjón Ingi fagnaði í nótt á nýju brautarmeti Sport „Ætla ekki að segja hvað gerðist í þriðja hring“ Sport „Ömurleg frammistaða hjá gæjunum í gulu búningunum“ Íslenski boltinn Göfuglyndur Guardiola: „Heilt yfir var Arsenal betri aðilinn“ Enski boltinn Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport „Verðum að passa okkur að fara ekki í fórnarlambsgír“ Íslenski boltinn Arteta fyrstur í fimm deildarleiki í röð án taps gegn Guardiola Enski boltinn „Stefnan sett á topp fjallsins og við reynum að klífa þangað“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikur á Hlíðarenda, Stúkan og Gullknötturinn Sport Kátt á hjalla í Katalóníu Fótbolti Fleiri fréttir Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Sjá meira