Vilja fráveitu orkuvers í umhverfismat 15. október 2012 00:00 Frá upphafi hefur hluti affallsvatnsins streymt út í hraunið við Svartsengi og myndað þar lón. fréttablaðið/valli
Umhverfisstofnun telur að fráveita orkuvers HS Orku í Svartsengi sé líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og því skuli framkvæmdin háð umhverfismati. Það gengur þvert á mat fyrirtækisins sem telur að framkvæmdin muni ekki hafa umtalsverð umhverfisáhrif í för með sér í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum. Því muni mat á umhverfisáhrifum ekki veita frekari svör um hugsanleg áhrif framkvæmdarinnar en þegar liggja fyrir. Þetta kemur fram í umsögn UMST til Skipulagsstofnunar dagsettri 31. ágúst um hvort og á hvaða forsendum framkvæmdin skuli háð umhverfismati. HS Orka hefur í hyggju að leggja niðurgrafna stálpípu 4,5 kílómetra leið frá niðurdælingarsvæði fyrirtækisins vestan við fjallið Þorbjörn til sjávar í Arfadalsvík. Þannig á að leysa frárennslismálin til framtíðar en eins og kunnugt er myndar hluti afrennslis frá Svartsengi Bláa lónið. Samkvæmt starfsleyfi má lónið ekki stækka meira en orðið er og því þarf að leita annarra leiða. Samkvæmt upplýsingum frá HS Orku um framkvæmdina er fullreynt með að dæla öllum vökvanum aftur niður í jarðhitakerfið og því sé áætluð fráveita eina raunhæfa leiðin til að leysa frárennslismál orkuversins til framtíðar. UMST segir í umsögn sinni að fjöldi álitamála þurfi frekari skoðunar við. Óvissa sé um áhrif á lífríki sjávar og strandar við Arfadalsvík þar sem er mikið fugla-, strand-, og sjávarlíf. Lögnin muni að auki valda umtalsverðu raski á tveimur svæðum á náttúruminjaskrá, en í náttúruverndaráætlun 2009-2013 er tillaga um að umrætt svæði verði friðlýst. Umsagnaraðilar vegna framkvæmdarinnar eru Grindavíkurbær, Fornleifavernd, Hafrannsóknastofnun, Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja, Orkustofnun og UMST. Samkvæmt upplýsingum frá Skipulagsstofnun er stefnt að því að taka ákvörðun um hvort framkvæmdin fer í umhverfismat í næstu viku, eða sem fyrst eftir að öll svör hafa borist. HS Orka telur að fari framkvæmdin í umhverfismat og niðurstaðan verði jákvæð, þá gætu framkvæmdir hafist haustið 2014, en annars fyrr. Áætlaður kostnaður er um 600 milljónir króna. Að ljúka matsmáli á einu ári kann vel að vera raunhæft, að mati Skipulagsstofnunar. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Sjá meira