Samfylkingin vill losna við Víkingaheima og Íslending 4. janúar 2012 14:39 Íslendingur í Víkingaheimum.
Samfylkingin í Reykjanesbæ vill selja Víkingaheima í stað þess að selja hlut í HS veitum að því er greinir frá í bókun frá flokknum og Víkurfréttir greina frá. Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar var samþykkt á bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi. Þar er gert ráð fyrir að 452 milljón króna halli verði á bæjarsjóði, það er A og B hluta. Bærinn skuldar þá 22 milljarða í lok árs, en ætla má að stórfelld eignasala liðinna ára verði til þess að daglegur rekstur sveitarfélagsins nái loks jafnvægi, að því er greint er frá á í bókun Samfylkingarinnar. Flokkurinn er sammála því að Reykjanesbær ætti að selja Magma skuldabréfið svokallaða vegna bágrar fjárhagsstöðu bæjarfélagsins, sem hefur verið undir eftirliti Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, undanfarin ár. En Samfylkingin þvertekur fyrir að selja hlut í HS Veitum eins og fyrr greinir frá. Þess í stað vill Samfylkingin losa bæinn undan ábyrgð á rekstri Víkingaheima, „sem eingöngu hefur fylgt kostnaður fyrir samfélagið og fyrirsjáanlegt er að svo verði áfram," eins og segir í bókun flokksins. Víkingaheimar er safn í Reykjanesbæ sem tekur á nýstárlegan hátt fyrir þátt Íslands í landafundum Norður-Ameríku. Þar má finna víkingaskipið Íslending sem sigldi til Ameríku sumarið 2000, og sýningu sem Smithsoninan stofnunin í Bandaríkjunum gaf til Víkingaheima. Hægt er að lesa nánar um bókun Samfylkingarinnar á vef Víkurfrétta.
Tengdar fréttir Áætla 452 milljóna halla hjá Reykjanesbæ í ár Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir þetta ár gerir ráð fyrir að 452 milljón króna halli verði á bæjarsjóði, það er A og B hluta. 4. janúar 2012 09:52 Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Sjá meira
Áætla 452 milljóna halla hjá Reykjanesbæ í ár Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir þetta ár gerir ráð fyrir að 452 milljón króna halli verði á bæjarsjóði, það er A og B hluta. 4. janúar 2012 09:52