Fiskurinn dýrastur í Melabúðinni og Gallerý fiski 21. mars 2012 14:32
Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á ferskum fiski í 23 verslunum vítt og breitt um landið síðastliðinn mánudag. Kannað var verð á 25 algengum tegundum af fiskmeti sem oft er á borðum landsmanna. Munur á hæsta og lægsta verði var oftast 25-75%. Lægsta verðið var oftast að finna hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi í Hafnarfirði eða í 15 tilvikum af 25. Mikil dreifing var á hæsta verðinu á milli verslanna, en hæsta verðið var oftast hjá Melabúðinni Hagamel og Gallerý fiski í Nethyl eða í 5 tilvikum af 25. Fiskbúðin Bryggjuhúsið neitaði þátttöku í könnuninni. Fiskbúðin Trönuhrauni var næst oftast með lægsta verðið eða í 5 tilvikum af 25. Keisarinn fiskbúð og veitingastaður Grandagarði var með lægsta verðið í 3 tilvikum. Mikil dreifing var á hæsta verðinu á milli verslanna, en hæsta verðið var oftast hjá Melabúðinni Hagamel og Gallerý fiski Nethyl í 5 tilvikum af 25. Allar 25 tegundirnar sem skoðaðar voru í könnuninni voru til hjá Fiskbúðinni Mosfellsbæ en næst mest úrval var hjá Fiskbúðinni Sundlaugavegi, Fiskbúðinni Sjávarhöllin Háaleitisbraut og hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi eða 24 af 25. Fæstar tegundirnar voru til hjá Fylgifiskum Suðurlandbraut eða 8 af 25 og hjá Hagkaupum Kringlunni 11 af 25. „Munur á lægsta og hæsta verði í könnuninni var frá 27% upp í 158%. Mestur verðmunur í könnuninni var á eldislaxi í sneiðum sem var dýrastur á 2.298 kr./kg. hjá Melabúðinni Hagamel en ódýrastur á 890 kr./kg. hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi en það gera 1.408 kr. verðmun eða 158%. Minnstur verðmunur var á algengri soðningu eða roðflettri og beinlausri ýsu sem var ódýrust á 1.490 kr./kg. í Litlu Fiskbúðinni Miðvangi en dýrust á 1.890 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Sundlaugarvegi, Fiskbúðinni Hafberg Gnoðavogi, Fiskikónginum Sogavegi og Fiskbúðinni Vegamótum, en það gerir 400 kr. verðmun eða 27%. Sem dæmi um mikinn verðmun má nefna að rauðsprettuflök sem voru ódýrust á 1.190 kr./kg. hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi og Keisaranum fiskbúð og veitingastaðnum Grandagarði en dýrust á 2.590 kr./kg. hjá Fiskikónginum Sogavegi það er 1.400 kr. verðmunur eða 118%. Fersk hrogn voru ódýrust á 690 kr./kg. hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi en dýrust á 1.490 kr./kg. hjá Fiskikónginum Sogavegi, Fiskbúðinni Hafrúnu Skipholti, Fiskbúðinni Freyjugötu og Fiskbúð Suðurlands, en það gerir 800 kr. verðmun eða 116%," segir í tilkynningu frá ASÍ.Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum:Fylgifiskum Suðurlandsbraut, Fiskbúðinni Sundlaugavegi, Hafberg Gnoðavogi, Fiskikónginum Sogavegi, Keisaranum fiskbúð og veitingastað, Fiskbúðinni Hafrúnu Skipholti, Fiskbúðin Sjávarhöllin, Melabúðinni Hagamel, Fiskbúðinni Freyjugötu, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Litlu Fiskbúðinni Hafnarfirði, Fiskbúð Suðurlands, Nóatúni, Fiskbúð Hólmgeirs Þönglabakka, Gallerý fisk Nethyl, Fiskbúðinni Hófgerði, Sjávarfagi Ísafirði, Fiskbúðin Mosfellsbæ, Til sjávar og sveita Ögurhvarfi, Samkaupum Úrval Hafnarfirði, Fiskbúðinni Vegamótum og Hagkaupum. Fiskbúðin Bryggjuhúsið neitaði þátttöku í könnuninni. Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fleiri fréttir Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Sjá meira