Karlar koma með fyrnd brot 23. apríl 2012 05:00 105 einstaklingar hafa kært kynferðisbrot til lögreglunnar á Akureyri síðan árið 2009. Þrír kærenda voru karlmenn. Fréttablaðið/vilhelm
Nær helmingur þolenda kynferðisbrota sem leitaði til Aflins á Akureyri á síðasta ári voru karlmenn. Alls leituðu 12 karlar og 14 konur til samtakanna í fyrra, að því er fram kemur í ársskýrslu. Starfsmenn Aflsins, sem eru samtök gegn kynferðisofbeldi, tóku 685 einkaviðtöl á árinu, en þau voru 427 árið 2010. Viðtölum fjölgaði því um rúm 60 prósent á milli ára. Gerendur eru karlmenn í flestum tilvikum, en Anna María Hjálmarsdóttir, formaður Aflsins, segir þolendur af báðum kynjum hafa leitað til samtakanna vegna kvenkyns gerenda. Hún segir hlutfall karla sem leiti til þeirra hafa aukist jafnt og þétt milli ára. „Gerendurnir eru í flestum tilvikum karlmenn, en ekki öllum,“ segir hún. „Ég held að fólk sé að viðurkenna það meira og meira að gerendur geti verið af báðum kynjum.“ Ekki er algengt að karlarnir leiti til lögreglunnar í kjölfar viðtals og aðstoðar hjá Aflinu, en Anna María segir það þó koma fyrir í undantekningartilvikum. Til samanburðar voru karlar 11,5 prósent þeirra sem leituðu til Stígamóta í fyrra, eða 32 af 278. Aflið tekur á móti einstaklingum af öllu landinu, en langstærstur hluti þeirra sem leita til samtakanna koma frá Akureyri og nágrenni. Anna María segir meira um að konur leiti sér aðstoðar vegna nýrra mála en karlar. Á milli áranna 2007 og 2011 hefur nýjum málum fjölgað um 466 prósent. Ekki hafa verið teknar saman tölur um heildarfjölda þeirra einstaklinga sem hafa leitað til Aflsins vegna kynferðisbrota. Samtökin voru stofnuð árið 2002 í kjölfar tilraunaverkefnis Stígamóta. Hundrað kynferðisbrot voru kærð til lögreglunnar á Akureyri á árunum 2009 til 2011. Þar af voru þrjú fórnarlambanna karlmenn. Fimm brot hafa verið kærð það sem af er ári og eru fórnarlömbin í öllum tilvikum konur. Gunnar Jóhannsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri, segir kynjahlutfall þeirra þolenda sem leiti til Aflsins því ekki endurspeglast í þeim málum sem koma inn á borð til lögreglunnar. „Skýringin er sú að í flestum tilvikum er um að ræða karlmenn sem eru nú að leita sér aðstoðar vegna þess að þeir voru kynferðislega misnotaðir í æsku,“ segir hann. „Og í langflestum tilvikum eru brotin löngu fyrnd og gerendurnir jafnvel látnir.“ Rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri rannsakar kynferðisbrot á öllu Norðurlandi. - sv
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira