Könnun: Flestir vilja gera Laugaveg að göngugötu í sumar 23. apríl 2012 15:53 Vísir/HAG
Meirihluti Reykvíkinga, eða 63,3%, er hlynntur því að hluta Laugavegs verði breytt í göngugötu í sumar ef marka má netkönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar. 26,6% svarenda voru alfarið hlynntir sumarlokun og segir í tilkynningu frá borginni að það sé mjög afgerandi niðurstaða. 18,1% voru mjög hlynntir og 18,6% frekar hlynntir sumarlokun. Aðeins 20,6% eru andvíg hugmyndinni, 7,2% voru alfarið andvíg , 3,7% mjög andvíg og 9,7% frekar andvíg. 16,1% svöruðu hvorki/né. „Athygli vekur að stuðningur við sumarlokun er mestur á meðal þeirra sem gefa upp hæstu tekjurnar. Þannig svara 33% í hópnum sem hefur fjölskyldutekjur á bilinu 800 - 999 þúsund á mánuði því til að þeir séu alfarið hlynntir hugmyndinni og 27% þeirra sem hafa fjölskyldutekjur milljón eða hærri," segir ennfremur. „Afgerandi stuðningur er einnig við hugmyndina á meðal fólks á aldrinum 18 - 54. Til dæmis eru 41% á aldrinum 25 - 34 ára alfarið hlynntir sumarlokun." Úrtakið var 1066 manns í öllum hverfum Reykjavíkur, 18 ára og eldri. Fjöldi svarenda var 664 eða 62.3%. Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar eftir hverfum kemur í ljós mjög afgerandi stuðningur við sumarlokun í þeim hverfum sem eru næst Laugavegi. Þannig eru 36% íbúa í Mið- og Vesturbæ alfarið hlynnt sumarlokun og 37% íbúa í Hlíðum og Laugardal. Í öðrum hverfum er einnig meirihluti svarenda hlynntur því að breyta Laugavegi að hluta til í göngugötu í sumar. Spurningin var svohljóðandi: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að hluti Laugavegar verði gerður að göngugötu í sumar?
Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Innlent Sigldu af stað með mótmælandann um borð Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ Innlent Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Innlent Fleiri fréttir Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Myndaveisla: Þjóðhátíðardagur Íslendinga haldinn hátíðlegur Slagsmál brutust út eftir árekstur Sjá meira