Efasemdir í OR-nefnd vegna Ölfusssamnings GAR skrifar 12. október 2012 00:00 „
Þetta vakti mína undrun sem lögfræðings," segir Ása Ólafsdóttir, meðlimur úttektarnefndar um Orkuveitu Reykjavíkur, um samkomulag sem OR gerði við sveitarfélagið Ölfus í tengslum við virkjanamál á Hellisheiði. Úttektarnefndin segir samning við Ölfus sem kynntur var á stjórnarfundi OR í apríl 2006 þarfnast „frekari skoðunar við". Samningurinn fól í sér 52,5 milljóna króna greiðslu frá OR til Ölfuss vegna aukinna umsvifa og álags á bæjarstjórann og bæjarstjórnina í tengslum við virkjanaframkvæmdir á Hellisheiði og 75 milljónir króna til uppgræðslustarfa vegna rasks. Þá er kveðið á um aðrar skyldur OR og greiðslur til Ölfuss. „Þegar við förum að skoða þetta betur og samhengi hlutanna þá sjáum við að á skipulagstímabilinu er verið að greiða þetta til Ölfuss og á sama tíma er Hveragerðisbær að senda mjög kröftug mótmæli vegna staðsetningar Bitruvirkjunar," segir Ása og minnir á að Skipulagsstofnun hafi hafnað Bitruvirkjun vegna umhverfissjónarmiða; virkjunin myndi trufla ferðaþjónustu. „Þegar settur umhverfisráðherra fékk síðan skipulagið til staðfestingar þá var því hafnað út frá því að það skorti jarðfræðilegar rannsóknir," bætir hún við. Úttektarnefndin bendir á að greiðslur OR til Ölfuss hafi átt að gera „sveitarfélaginu kleift að hraða öllum umsögnum og leyfisveitingum sem þörf væri á". Nefndin kveður viðmælendur sína hafa sagt að samkomulagið þyrfti ekki að vera óvenjulegt. Hæstiréttur hafi til dæmis sagt að Flóahreppur hafi mátt heimta 6,5 milljóna króna viðbótargreiðslu frá Landsvirkjun vegna gerðar aðalskipulags. „Mér finnst þetta ekki sambærilegt," segir Ása og vísar þar í upphæðirnar í hvoru máli fyrir sig. „Líka vegna þess að þar [í Flúðahreppi] er verið að greiða fyrir ákveðið skipulag, nánast upp á krónu, reikning verkfræðistofunnar á meðan þarna [í Ölfusi] eru einhverjar óskilgreindar upphæðir," segir Ása sem kveður þennan þátt ekki hafa verið skoðaðan nánar af úttektarnefndinni þar sem hann varði ekki fjárhagsstöðu Orkuveitunnar.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira