Doktorsnám, Crossfit, brjóstagjöf og lyftingar 11. ágúst 2012 11:00 Anna Hulda Ólafsdóttir hefur æft Crossfit í tvö ár og náð undraverðum árangri. mynd/anton
Anna leggur stund á doktorsnám við Háskóla Íslands. Meðfram stífu námi iðkar hún Crossfit af miklum móð. Hún hefur einungis æft greinina í tæpt ár en hefur náð undraverðum árangri. Anna komst meðal annars á Evrópumeistaramótið í Crossfit sem haldið var í Danmörku fyrr í sumar auk þess að slá tvö Íslandsmet í ólympískum lyftingum á móti sem haldið var á Akureyri í júlí. „Ég æfði áhaldafimleika á yngri árum en lenti í óhappi á æfingu og fór úr hryggjarlið. Ég var alltaf slæm í bakinu og mátti lítið gera án þess að bólgur tækju sig upp. Þá svaf ég illa og mig verkjaði í allan skrokkinn." Anna hélt að hún gæti aldrei stundað álíka íþrótt og fimleika þar sem æfingar eru stífar og miklar kröfur gerðar. „Eftir að ég fór að æfa Crossfit gat ég farið að gera alls kyns lyftur sem áður hefðu sett bakið á mér í hnút. Crossfit er því fullkomið æfingarkerfi fyrir mig." Anna missti móður sína úr krabbameini árið 2010 sem var henni mikið áfall. Í kjölfarið breytti hún mataræði sínu og gerðist nánast alfarið grænmetisæta. Hún hefur ávallt haft varann á hvað varðar töku fæðubótarefna, sérstaklega eftir að hún eignaðist dóttir sína sem er enn á brjósti. „Ég rakst á PRO-VX próteinið frá Sci-MX hjá Líkama og lífsstíl sem inniheldur engar dýraafurðir og er unnið úr sojabaunum, hrísgrjónum og fleiru. Það hefur aukið styrk minn talsvert. Nýlega fór ég að taka CREA+ kreatín frá Sci-MX og varð alveg hissa hvað það jók kraftinn í beinu samhengi við inntöku." Spurð um framtíðina segist Anna stefna á næsta heimsmeistaramót í Crossfit og að ná lengra í ólympísku lyftingunum. Gaman verður að fylgjast með afrekum Önnu í framtíðinni enda við öllu að búast þegar þvílík afreksíþróttakona er á ferð.Líkami og lífsstíll er einkaumboðsaðili Sci-MX fæðubótarefna á Íslandi. Hjá Sci-MX eru engar málamiðlanir gerðar hvað gæðin varðar. Allar vörurnar eru framleiddar í Evrópu undir ströngustu reglugerðum sem finnast í heimunum. Með hinum einstöku háu stöðlum á hráefnavali, nákvæmri framleiðslutækni og gríðarlegum hreinleika er tryggt að þú getir keypt allar vörur okkar með algjörri fullvissu um gæðin, öryggi, nákvæma innihaldslýsingu og virkni. Hver einasta framleiðslulota gengst undir ítarlega efnagreiningu, er 100% rekjanleg ásamt því að vera með ISO-9001 (BS EN ISO 9001 : 2000) og ISO-17025 vottanir.Sci-MX er eini fæðubótarefnaframleiðandi í Evrópu sem uppfyllir að fullu strangar reglugerðir og staðla Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA). Einnig er Sci-MX eina ESB skrásetta fæðubótarvörumerkið í Evrópu.Nánari upplýsingar er að finna á: thinnlikami.is
Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira