Gagnrýni vegna unglegra fyrirsæta 12. apríl 2012 08:00 Að minnsta kosti ein athugasemd hefur verið send til Hagkaupa þar sem unglegt útlit fyrirsætanna er gagnrýnt.
Nokkur gagnrýni hefur verið uppi vegna unglegra nærfatafyrirsæta í síðasta Hagkaupsbæklingi. Fyrirsæturnar sem um ræðir eru sextán og tuttugu ára. Að minnsta kosti ein athugasemd hefur verið send til Hagkaupa vegna málsins, en ekkert svar hefur borist. Sigríður Gröndal, innkaupastjóri sérvöru Hagkaupa, segir að kvenfatamódelin í bæklingunum eigi almennt að vera eldri en átján ára, yfirleitt miðað við tvítugt. „Okkar markhópur er konur á öllum aldri,“ segir hún. „Þær eru heldur grannar í þessu blaði og við ætlum að reyna að hafa það í huga fyrir næsta blað.“ Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, segir allra reglna yfirleitt gætt. „Ef viðskiptavinir hafa bent okkur á eitthvað höfum við reynt að bregðast við því,“ segir hann. Kristín Pálsdóttir, talskona Femínistafélags Íslands, segir það enn athyglisverðara að flestar konurnar í blaðinu séu klæðalitlar og í bjóðandi stellingum. „Mjöðmum er skotið út eða hárið ýft til að undirstrika kynþokka módelanna,“ segir hún. „Annars eru þær með hendur fyrir aftan hnakka eða lafandi í óvirkri stellingu.“ Þá segir Kristín að uppstillingar á karlmódelum séu af allt öðrum toga og engan kynferðislegan undirtón sé þar að finna.- sv
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Fleiri fréttir Á áttunda tug taka afstöðu til sakar í Landsbankamálinu Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Sjá meira