Viðskipti innlent

Neitar að upplýsa um virði FIH-seljendaláns

Már Guðmundsson seðlabankastjóri er stjórnarformaður Eignasafns Seðlabanka Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Már Guðmundsson seðlabankastjóri er stjórnarformaður Eignasafns Seðlabanka Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Seðlabanki Íslands vill ekki gefa upp hvert bókfært virði seljendaláns sem veitt var við sölu FIH-bankans haustið 2010 er. Lánið er ein helsta eign bankans og er geymt í dótturfélagi hans, Eignasafni Seðlabanka Íslands (ESÍ). Í svari Seðlabankans við fyrirspurn Markaðarins segir að „ekki eru veittar upplýsingar um virði einstakra bréfa". Seðlabankinn eignaðist veð í FIH þegar hann lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra skömmu áður en bankinn féll í október 2008.

Höfuðstóll seljendalánsins, sem upphaflega var sagt um 70 milljarða króna virði, átti að leiðréttast með tilliti til afskrifta FIH fram til ársloka 2014. Frá miðju ári 2010 hefur FIH afskrifað um 50 milljarða króna. Óbein eign FIH í danska skartgripaframleiðandanum Pandora gat á móti aukið virði lánsins. Hlutabréf í því félagi hafa hins vegar hríðfallið í verði og eru langt frá því að skila Seðlabankanum auknum heimtum.

Þann 20. mars síðastliðinn svaraði Seðlabankinn skriflega spurningum Helga Hjörvar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar, vegna lánsins. Þar segir að „miðað við núverandi stöðu eru líkur á að hluti þess muni tapast".

Í lok árs 2011 voru eignir ESÍ metnar á 340,3 milljarða króna, sem var 21% af heildarefnahag Seðlabankans. Eignirnar lækkuðu um 56 milljarða króna í fyrra. Í ársskýrslu Seðlabankans segir að þá rýrnun megi „rekja til innheimtu eigna og niðurgreiðslu skulda gagnvart Seðlabankanum". Virðisrýrnun krafna var 23,9 milljarðar króna í fyrra en Seðlabankinn vill ekki gefa upp hvaða kröfur það eru sem tapað hafa virði sínu.- þsj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×