Mikil óvissa um orkugetu jarðvarma 4. apríl 2012 06:30 Hörður Arnarson segir að mat á orkugetu svæða í nýtingarflokki Rammaáætlunar sé við efri mörk. Af þeim 8,5 terawattstundum sem svæðin séu sögð geta framleitt séu aðeins 2,5 til 3 trygg. fréttablaðið/stefán
Forstjóri Landsvirkjunar segir aðeins lítinn hluta þeirrar orku sem gert er ráð fyrir í nýtingarflokki Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða vera tryggan. Hann undrast að allar vatnsaflsvirkjanir séu settar í bið- eða verndarflokk, utan tveggja lítilla virkjana. Orkuframboð á Suðurlandi sé minnkað til muna. Þingsályktunartillaga um Rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða kom fram um helgina. Áætlunin er samvinnuverkefni þeirra Oddnýjar G. Harðardótturiðnaðarráðherra og Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra. Hún byggir á vinnu verkefnisstjórnar sem lagði fram sína skýrslu í haust. Helstu breytingarnar frá þeirri skýrslu er að þrír virkjanakostir í neðrihluta Þjórsár eru færðir úr nýtingarflokki í biðflokk, sem og tveir virkjanakostir á hálendinu. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir Þjórsárvirkjanirnar hafa komið á óvart. „Við töldum allar forsendur til að fara í þær virkjanir og það var í samræmi við álit verkefnisstjórnar og flokkun ráðherranna fyrir nokkrum mánuðum síðan. Við teljum að engar nýjar upplýsingar hafi komið fram sem réttlæti breytta flokkun." Hörður segir laxagengd í ánni hafa verið rannsakaða í 40 ár og af miklum krafti síðustu tíu ár. Allar þær rannsóknir sem nú sé kallað eftir séu til. „Mikið af því sem verið er að benda á hefur verið í skoðun lengi og miklar rannsóknir farið fram akkúrat á þeim sviðum þar sem menn hafa haldið því fram að þær vanti. Það vantar einfaldlega yfirsýn yfir rannsóknirnar." Horfið frá vatnsaflinuAðeins tvær vatnsaflsvirkjanir er að finna í nýtingarflokki og eru þær báðar litlar. Þar er um að ræða Hvalárvirkjun, sem er rúm 30 megawött og Blönduveitu, sem er um 20 megawött. Hörður segir stefnubreytinguna frá vatnsafli koma á óvart. „Það er dálítið sérstakt að leggja þessa ofuráherslu á jarðvarmann, með þeirri miklu óvissu sem þar er. Það var ekki lagt upp með það, í erindisbréfi verkefnastjórnar eins og við skiljum það, að stefna að því að hætta nýtingu vatnsafls. Það er mikilvægt að hafa það í huga varðandi Rammaáætlunina að þar er gert ráð fyrir að 8,5 terawattsstundir séu í nýtingarflokki. Það má segja að engar vatnsaflsvirkjanir sé þar að finna, utan Hvalá og Blönduveitu. Um 95 prósent af orkunni koma úr jarðvarma." Hörður segir að eins og áætlunin líti út nú sé eingöngu um að ræða virkjanir á Norðausturlandi hjá Landsvirkjun: Þeistareyki, Bjarnarflag og Kröflu. Ekkert annað sé í pípunum. „Það kemur á óvart að engin vatnsaflsvirkjun sé í nýtingarflokki eftir þá mikla vinnu sem búið er að leggja í málið." Jarðvarminn í óvissuAf þeim 8,5 terawattsstundum sem Rammaáætlun gerir ráð fyrir að nýta, segir Hörður að aðeins 2,5 til 3 séu öruggar. Það sé eðli jarðvarmans hve mikil óvissa ríkir um orkugetuna. Þá séu fjölmörg svæðanna lítt eða ekkert rannsökuð. „Af þessum svæðum í nýtingarflokki eru svæði sem hefur verið borað í, svo sem á sumum háhitasvæðum á Reykjanesi. Þá eru þarna svæði sem menn eru rétt að byrja að skoða, eins og vestursvæðið á Þeistareykjum. Orkugeta þess liggur ekki fyrir, enda hafa þar aðeins farið fram yfirborðsmælingar." Hörður segir að slíkar mælingar sýni aðeins fram á að svæðið hafi verið heitt, ekki hvort það sé enn heitt. „Í öðru lagi geta menn lent í vandræðum með innihald gufunnar, eins og í Kröflu, en það er erfitt að nýta það svæði. Þar að auki verður að nýta jarðvarmann í skrefum. Þó 8,5 terawattstundir væru heildarmagnið á þessum svæðum verður að fara mjög varlega af stað, til að tryggja sjálfbæra nýtingu. Það er alls ekki þannig að hægt sé að ráðast í þetta á næstu misserum. Ef menn skoða nýtingarlistann og spyrja hverju Rammaáætlunin breyti sést að það er afskaplega lítið."
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira