Vinabeiðni aðmíráls reyndist fölsk 3. apríl 2012 07:00 James Stavridis
Yfirmenn í herafla Bandaríkjanna og Bretlands, auk háttsettra embættismanna í löndunum tveimur, féllu í gildru njósnara þegar þeir samþykktu vinabeiðni á Facebook-samskiptasíðunni sem virtist vera frá James Stavridis, bandarískum aðmírál sem starfar nú sem yfirmaður herafla NATO í Evrópu. Stavridis hafði hins vegar ekki tekið upp á því að setja upp síðu á Facebook, heldur er talið að kínverskir njósnarar hafi staðið á bak við tiltækið, að því er fram kemur í frétt breska dagblaðsins Telegraph um málið. Tilgangurinn með þessu var að fá sem mest af persónulegum upplýsingum um þessa nýju vini falska aðmírálsins. Hvorki Facebook né NATO hafa gefið upp hversu margir féllu í gildruna. Njósnararnir fengu með þessu upplýsingar á borð við persónuleg netföng, símanúmer, nöfn fjölskyldumeðlima, myndir og jafnvel upplýsingar um ferðalög viðkomandi. Slíkar upplýsingar geta nýst á margvíslegan hátt, til dæmis til að auðvelda tölvuþrjótum að hakka sig inn í mikilvæg kerfi, og mögulega til að kúga viðkomandi til að gera eitthvað vafasamt. Afleiðingarnar af þessu urðu aðrar en einhverjir hefðu getað reiknað með. Í stað þess að setja hömlur á notkun á Facebook-síðunni krefst NATO þess nú að yfirmenn og erindrekar hjá bandalaginu séu með sína eigin Facebook-síðu til að koma í veg fyrir sambærileg atvik í framtíðinni.
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Sjá meira