Hótar málsókn vegna atlögu að lögmönnum 2. apríl 2012 05:00 Brynjar, í miðið, hefur mikla reynslu af verjendastörfum. Hann var til dæmis meðal verjenda í Baugsmálinu. Fréttablaðið/gva „
Við erum skyldugir gagnvart lögum að sinna þessu starfi og svo ákveður ríkið þóknunina einhliða. Það er mjög erfitt að sætta sig við það,“ segir Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands. Hann krefst þess að hið opinbera leiðrétti kjör lögmanna sem taka að sér verjendastörf í sakamálum, ella komi til greina að fara með málið fyrir dóm. Brynjar skrifar pistil um málið í nýjasta tölublað Lögmannablaðsins, sem kom út í síðustu viku. Þar segir frá því að ráðherra dómsmála hafi í kjölfar bankahrunsins sett reglugerð um þóknanir til verjenda, sem áður var á könnu Dómstólaráðs að ákvarða. Með reglugerðinni hafi þóknunin jafnframt verið lækkuð um tíu prósent, niður í tíu þúsund krónur á tímann, sem sé um það bil helmingurinn af hefðbundnu tímakaupi lögmanna. Brynjar segir „fullkomlega fráleitt“ að ráðherra ákveði einhliða upphæðina á sama tíma og lögmenn séu skyldugir að lögum að verja sakamenn. „Í hugum margra er hér um hreina aðför að lögmönnum að ræða. Undir það má taka. Það er ólíðandi að þeir lögmenn sem taka að sér vörn í sakamálum, eða önnur réttargæslustörf, þurfi að sæta því að fá ekki greidda eðlilega þóknun fyrir vinnu sína,“ segir í pistlinum. Brynjar gagnrýnir sömuleiðis þá ákvörðun Dómstólaráðs að lækka greiðslur til lögmanna í svokölluðum útivistarmálum, það er þegar skjólstæðingur lögmannsins mætir ekki þegar mál er þingfest og því lýkur þá og þar. Sú þóknun sé nú tíu þúsund króna eingreiðsla þótt oft liggi mikil vinna að baki fyrir lögmenn. Stundum geti jafnvel borgað sig fyrir skjólstæðinginn, til dæmis í skuldamálum sem liggja nokkuð beint við, að mæta ekki og sleppa þannig mun betur en ella frá greiðslu málskostnaðar. Brynjar segir að verði þessi mál ekki færð í eðlilegt horf innan skamms tíma komi til álita að láta reyna á þau fyrir dómi. Fréttablaðið falaðist eftir viðbrögðum frá innanríkisráðuneytinu vegna málsins og fékk þau svör frá upplýsingafulltrúanum Jóhannesi Tómassyni að borist hefði erindi frá Lögmannafélaginu vegna málsins. „Ráðuneytið hefur erindið til skoðunar til að kanna hvort unnt er að verða við þeirri beiðni. Ekki er hægt að segja á þessari stundu hvenær niðurstaða liggur fyrir en þess er vænst að það geti orðið mjög bráðlega.“ stigur@frettabladid.is
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira