Einn dæmdur fyrir að brenna Krýsuvíkurkirkju 28. mars 2012 04:00 Kirkjan er metin á tæpar tólf milljónir. Þar af fást fjórar og hálf úr brunatryggingum en afganginn þarf sá dæmdi að greiða. Fréttablaðið/stefán
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt rúmlega tvítugan mann í eins árs fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir að leggja eld að Krýsuvíkurkirkju í janúar 2010 með þeim afleiðingum að hún brann til ösku. Dómurinn féll um miðjan febrúar en hefur ekki verið birtur opinberlega. Einn rúmlega tvítugur maður og tvær tæplega tvítugar stúlkur eru hins vegar sýknuð af aðild að málinu. Fólkið viðurkenndi allt fyrir dómi að hafa farið að Krýsuvíkurkirkju umrætt kvöld og kannaðist við að kviknað hefði í kirkjunni. Allt skellti það skuldinni á hinn dæmda, sem játaði að hafa hellt úr bensínbrúsa inni í kirkjunni og reynt að kveikja í. Hann sagði hins vegar að tilraunir sínar hefðu allar verið mislukkaðar og að endingu hafi það verið hinn maðurinn sem kveikti eldinn. Dómurinn hafnar þessu og telur ekkert sanna að hinn maðurinn og stúlkurnar tvær hafi átt þátt í íkveikjunni. Hinn dæmdi hefur áður komist í kast við lögin. Hann er haldinn vægri þroskaskerðingu sem þó hefur ekki áhrif á sakhæfi hans. Það er virt honum til refsilækkunar að hann hafi að mestu leyti játað sök í málinu. Krýsuvíkurkirkja var á fornminjaskrá og er maðurinn dæmdur til að greiða Þjóðminjasafninu 7,3 milljónir í skaðabætur. Til stendur að endurbyggja kirkjuna. - sh
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Erlent Fleiri fréttir Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Sjá meira