Búlandsvirkjun hefur mikil áhrif á náttúru og byggð 28. mars 2012 03:15 Suðurorka vinnur að undirbúningi Búlandsvirkjunar. Framkvæmdastjórifyrirtækisins segir að umhverfismat gæti verið tilbúið um mitt næsta ár og gagnrýnir að virkjunina eigi að setja í biðflokk.
virkjanirÁstæður þess að Búlandsvirkjun er sett í biðflokk í frumvarpi um rammaáætlun eru að veruleg óvissa ríkir um umhverfisáhrifin en á vatnasviði Skaftár og á áhrifasvæði virkjunarinnar eru náttúruverðmæti á heimsvísu. Þetta kemur fram hjá Þóru Ellen Þórhallsdóttur sem var formaður faghóps I og í verkefnisstjórn 2. áfanga rammaáætlunar. Virkjunin er rétt austan Eldgjár, á svæði með einstakar jarðminjar, sérstakt lífríki og fjölbreytt og fagurt landslag. Faghópurinn taldi að vatnasvið Skaftár væri á heildina litið fimmta verðmætasta svæðið af þeim 30 sem metin voru í 2. áfanga rammaáætlunar, og Búlandsvirkjun var í hópi þeirra tíu vatnsaflsvirkjana sem faghópurinn taldi að myndu hafa hvað neikvæðust áhrif á umhverfi. Virkjunin hefur áhrif á þrjár ár, Skaftá, Syðri-Ófæru og Tungufljót, og felur m.a. í sér að farvegur Skaftár verður nær þurr á allt að 15 km kafla neðan Hólaskjóls. Þóra Ellen segir að þessari virkjun fylgi meiri óvissa um umhverfisáhrif heldur en mörgum öðrum sem metnar voru í rammaáætlun, meðal annars vegna þess að gert er ráð fyrir að í Skaftárhlaupum verði stíflan felld niður á kafla þannig að hlaupvatn fari ekki í miðlunarlónið heldur niður upprunalegan farveg Skaftár. Óvissa ríkir um setsöfnun ofan stíflunnar, og fok úr farveginum í kjölfar hlaupa og frá miðlunarlóninu sem á að vera í grunnum og grónum dal. Þá segir Þóra óvissu ríkja um áhrif framkvæmdarinnar á grunnvatn og lindir í byggð, en við Botna í Eldhrauninusunnan Skaftár er eitt mesta lindasvæði á landinu og í Grenlæk og Tungulæk eru mikil verðmæti í sjóbirtingi. Sjónræn áhrif framkvæmdarinnar verði mikil á mjög verðmætt svæði. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira