Númerum stolið af 600 bílum 26. mars 2012 09:00 Stolin skráningarmerki eru notuð við stuld á eldsneyti. fréttablaðið/anton Brink
lUm 600 tilkynningar um þjófnað á númeraplötum bifreiða hafa borist lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá því að skráning slíkra mála hófst árið 2009. Hlutfall upplýstra mála er í kringum 10 til 20 prósent á ársgrundvelli, samkvæmt upplýsingum frá upplýsinga- og áætlanadeild lögreglunnar. Oftast hefur þjófnaðurinn tengst stuldi á eldsneyti. „Eldsneytisþjófnaðurinn hefur verið mest áberandi en dæmi eru um að stolnar númeraplötur hafi verið notaðar við önnur afbrot,“ segir Kristján Ólafur Guðnason aðstoðaryfirlögregluþjónn. „Lögreglan hefur áhyggjur af tíðum eldsneytisþjófnuðum á þeim bensínstöðvum olíufélaganna sem heimila dælingu án þess að greitt sé fyrir eldsneytið áður. Þau brot tengjast mjög oft þjófnaði á skráningarmerkjum.“ Kristján Ólafur segir þau olíufélög sem um ræðir hafa dregið úr slíkri þjónustu en ekki nægjanlega að mati lögreglu. Um 30 til 40 prósent eldsneytisþjófnaðanna sem tilkynnt er um upplýsast, að sögn Kristjáns. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var eldsneyti stolið í 16 tilvikum hjá einu olíufélaganna á einni viku fyrir skemmstu. Í þeim tilvikum voru þjófarnir ýmist með stolnar númeraplötur eða á númerslausum bílum. Hjá N1 var vandamálið orðið svo mikið að gripið var til þess ráðs á dögunum að fjarlægja af bensínstöðvum gula hnappinn sem á stóð „greitt inni“. Viðskiptavinir verða nú að biðja um að dæla verði sett í gang og greiða ýmist áður en þeir dæla eða eftir á greiði þeir ekki í sjálfsala. Margir hafa komið á Umferðarstofu vegna kaupa á nýjum númeraplötum, samkvæmt upplýsingum starfsmanns þar. Það sem af er þessu ári hefur lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu borist yfir 40 tilkynningar um slíkan þjófnað. Í fyrra bárust 170 tilkynningar, árið 2010 voru tilkynningarnar 164 en 222 árið 2009. Hver númeraplata kostar 2.600 krónur og sé báðum númeraplötunum stolið verður kostnaður bíleigandans þess vegna 5.200 krónur. Kostnaður við plötur á 600 bíla er rúmar 3,1 milljón króna. Sævar Hreiðarsson hjá tjónadeild Tryggingamiðstöðvarinnar segir tjónið ekki bætt nema um sé að ræða enga eigin áhættu í kaskó. „Þetta er lítil upphæð og það er enginn með svo litla áhættu í kaskó.“ Að sögn Sævars getur verið um undantekningu að ræða ef skemmdir verða á bílnum þegar númeraplatan er tekin af honum. - ibs
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Innlent Fleiri fréttir Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Sjá meira