Fréttaskýring: Litla ávöxtun að hafa sé sparnaður ekki bundinn 19. mars 2012 13:00 Til margs ber að líta þegar tekin er ákvörðun um það á hvers konar bankareikningi er skynsamlegast að geyma sparnað sinn. Fréttablaðið/Vilhelm
Litla ávöxtun sparifjár er að hafa á óbundnum innlánsreikningum íslensku viðskiptabankanna fjögurra. Talsvert meiri ávöxtun er að fá á bundnum reikningum, svo sem á verðtryggðum reikningum eða þá reikningum sem bera fasta vexti. Til hvers ber að líta þegar sparnaði er fundinn geymsla? „Spurning númer eitt, tvö og þrjú er alltaf hvort og þá til hve langs tíma fólk er tilbúið að binda sparnaðinn sinn. Spurningin sem kemur þar á eftir er svo hvort það vill hafa hann verðtryggðan eða óverðtryggðan," segir Kristín María Magnúsdóttir sem er ráðgjafi einstaklinga hjá Íslandsbanka. Kristín María segir að vilji fólk fá ágætis raunávöxtun verði það eiginlega að velja bundna reikninga. Þá segir hún að bundnir verðtryggðir reikningar hafi komið hvað best út síðustu misseri. Slíkir reikningar séu hins vegar í flestum tilvikum bundnir til að minnsta kosti 36 mánaða. Með því að velja verðtryggða reikninga verja sparifjáreigendur sig fyrir því að verðbólga rýri ávöxtun sparnaðarins. Þriggja ára binding er hins vegar nokkuð langur tími og ekki víst að skynsamlegt sé fyrir alla að festa sparnaðinn sinn svo lengi þar sem margt getur komið upp á í millitíðinni. „Fyrst þarf sá sem hyggst spara að ákveða hvenær hann vill nota peningana og í kjölfarið meta hvað er hægt að binda sparnaðinn lengi. Og það verður að hafa í huga að þetta er í flestum tilvikum alveg fast og engin úrræði til staðar til að losa sparnaðinn," segir Kristín María og bætir við að því geti verið skynsamlegt að geyma hluta sparnaðar síns utan bundinna reikninga til að geta notað komi eitthvað óvænt upp. Ágætis raunávöxtun er einnig að fá með því að velja svokallaða fastvaxtareikninga sem eru bundnir til að minnsta kosti tólf mánaða. Á slíkum reikningum breytast vextirnir ekkert á binditímanum. Fari verðbólga hækkandi á binditímanum getur raunávöxtun því lækkað talsvert.Kristín María Magnúsdóttir.Kristín María segir að sparifjáreigendur þurfi því að velta fyrir sér hvernig þeir telji líklegast að verðbólgan þróist á sparnaðartímabilinu. „Sérstaklega þeir sem vilja spara á fastvaxtareikningum þurfa að gera upp við sig hvort þeir hafa trú á því að vextir muni fara lækkandi eða hækkandi," segir Kristín María. Loks mælir Kristín með því að þeir sem vilja byggja upp sparnað nýti sér valmöguleika sem bankarnir bjóða upp á sem nefnist reglulegur sparnaður. Þá er föst upphæð lögð inn á sparnaðarreikning í hverjum mánuði. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Erlent Íhugar að leggja á sykurskatt Innlent Sinueldur við Framheimilið Innlent „Framsókn styður ekki bókun 35“ Innlent Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Innlent Happdræti Háskólans varar við svikurum Innlent „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ Innlent Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Erlent Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Innlent „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Innlent Fleiri fréttir Happdræti Háskólans varar við svikurum Íhugar að leggja á sykurskatt „Framsókn styður ekki bókun 35“ Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Sinueldur við Framheimilið Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Gómaður með hamar, hnífa og þýfi „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing „Við erum áratugum of sein“ „Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Sjá meira