Vandræðalega stór titill 3. mars 2012 12:00 mastermind Baldur hefur verið búsettur í San Francisco í fjögur ár og unir hag sínum vel í borginni.
Myndlistarmaðurinn Baldur Helgason hlaut Mastermind-verðlaun dagblaðsins SF Weekly í San Francisco fyrir skemmstu, einn þriggja af hundruðum þátttakenda. „Þetta er stórt nafn á viðurkenningu og dálítið vandræðalegt að taka á móti, ef ég á að vera alveg hreinskilinn, en engu að síður mjög mikill heiður," segir myndlistarmaðurinn Baldur Helgason sem nýlega var sæmdur Mastermind-verðlaunum vikublaðsins SF Weekly í San Francisco. Verðlaunin eru veitt árlega listamönnum sem þykja skara fram úr á sínu sviði af þátttakendum á San Francisco-svæðinu. Dómnefnd blaðsins valdi þrjá sigurvegara úr hópi nokkur hundruð þátttakenda sem sendu inn verk og hljóta þeir Mastermind-nafnbótina auk 1.500 dollara styrks sem ætlaður er til áframhaldandi þróunar listarinnar. Þá halda sigurvegararnir sýningu á Artopia-listahátíðinni í San Francisco, en auk Baldurs hlutu listamenn sem sérhæfa sig í dansi og ljósmyndun verðlaunin í ár. Baldur hefur verið búsettur í San Francisco í fjögur ár og er kvæntur bandarískri konu. Hann útskrifaðist með MA-gráðu í teikningu frá Academy of Art University síðastliðið vor, en áður hafði hann lokið BA-námi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Lokaverkefni Baldurs við Academy of Art University samanstóð annars vegar af olíuportretti og hins vegar myndskreytingu á þjóðsögunni um Búkollu, sem listamaðurinn vann með koparstungu-aðferð. Síðan hefur hann starfað sem myndlistarmaður í borginni og segir Mastermind-titilinn heldur betur hafa vakið áhuga margra. „SF Weekly er víðlesið blað sem allir geta náð sér í á hverju götuhorni, svo umfjöllunin þar hefur komið sér mjög vel. Daginn eftir afhendinguna var ég á forsíðunni og sá í lestinni að allir voru að lesa um mig. Ég hef fengið mörg símtöl frá fólki sem vill skoða verkin mín eða kaupa og það er alveg frábært," segir Baldur, en hann leikur sér meðal annars mikið að portrett-forminu, setur viðfangsefnin í nútímalegra form og hrærir í með hjálp ímyndunaraflsins. „Margir hafa áhuga á uppruna mínum og þá set ég mig bara í kynningarfulltrúa-gírinn og reyni að selja Ísland." kjartan@frettabladid.is
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Lífið „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Tónlist Fjögurra ára rússíbanareið að baki Menning Spáir Ísrael sigri í Eurovision Lífið Fréttatía vikunnar: Eldgos, knattspyrna og rapparar Lífið Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon Tónlist „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Lífið „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Lífið „Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ Tíska og hönnun Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana Lífið Fleiri fréttir „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fréttatía vikunnar: Eldgos, knattspyrna og rapparar „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Spáir Ísrael sigri í Eurovision „Það gekk ekki hvað henni leið illa“ Páfiðrildi við Krónuna í Skeifunni Bashar Murad endurgerir palestínskt lag föður síns Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Bieber-hjónin eiga von á barni Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Tónlistarframleiðandinn Steve Albini látinn Backstreet-strákur kominn aftur til Íslands Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana „Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Hafa komist að samkomulagi vegna andláta á Astroworld Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Náttúrulegar bótox-meðferðir án sprautunála „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Myndaveisla: Gleði og gæsahúð á forsýningu Sveitarómantíkur Raggi Bjarna þekkti ekki Friðrik Dór með nafni Friðrik Ómar kynnir stig Íslands í Eurovision Ian Gelder úr Game of Thrones látinn „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Svakalega erfitt en stórkostlegt Anníe Mist fór í keisaraskurð Sjá meira