Strákarnir okkar Andri Snær Magnason skrifar 25. janúar 2012 06:00 Myndin hér fyrir neðan er af svokölluðu Gullaldarliði Fylkis sem varð Íslandsmeistari í knattspyrnu árið 1986 – þegar þeir voru 13 og 14 ára. Morgunblaðið og DV lögðu heilsíður undir þennan úrslitaleik og Halldór Halldórsson á DV kallaði þá aldrei annað en Gullaldarlið Fylkis. Á þessum árum spilaði meistaraflokkurinn ýmist í annarri eða þriðju deild. Strákarnir höfðu engar glæstar fyrirmyndir til að miða sig við en ég man að ég hugsaði þegar þeir unnu þennan fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins: Ef strákarnir verða áfram jafn góðir og jafnaldrarnir í KR og ÍA ætti Fylkir séns á Íslandsmeistaratitli árið 2000. Þeim sem horfði eingöngu á meistaraflokkana spila í þriðju deild hefði þótt slíkar væntingar fáránlegar. Þessi samanburður flaug mér í hug þegar niðurstöður um læsi ungra pilta birtust nýlega. Alþjóðlegar Pisa kannanir sýndu að um 23% 15 ára stráka á Íslandi teldust ekki geta lesið sér til gagns á móti 9% stúlkna. Þessi þrefaldi kynjamunur er athyglisverður, vegna þess að kynin eru saman í bekk, sitja í sömu tímum, hafa sömu kennslubækur og búa við sömu aðstæður. Þetta ólæsi veldur lélegum árangri í stærðfræði – vegna þess að strákarnir eiga erfitt með að skilja orðadæmi. Í nágrannalöndum okkar fer veraldlegur auður yfirleitt saman við menntastig og læsi. Hér á landi er þessu öfugt farið. Við erum eina landið í Pisa könnuninni þar sem tengslin eru neikvæð. Því meiri veraldlegar eigur á heimili, því meiri líkur á lélegum árangri í lesskilningi. Mælingar benda til þess að lestur framhaldsskólanema fari minnkandi en á sama tíma hafa fjárveitingar til skólabókasafna dregist saman. Í íslenskum grunnskólum er minni tíma varið til móðurmálskennslu en í grunnskólum annars staðar á Norðurlöndum og kennaraefni hér á landi fá sífellt minni menntun í íslensku. Ég velti fyrir mér – ef staðan er svona núna – hvernig verður staða Íslands eftir 15 ár ef þessar niðurstöður eru ekki teknar alvarlega? Ef þetta endurtekur sig ár eftir ár? Höfum við efni á að sóa hæfileikum fjórðungs drengja af heilli kynslóð? Ef menntun er grundvöllur hagsældar – og lestur er grundvöllur menntunar – hvernig verður hagvöxturinn ef fjórðungur strákanna hefur engan aðgang að rituðum upplýsingum heimsins? Ef læsi er grundvöllur fyrir upplýstu lýðræði – hvað kjósa menn eftir 15 ár? Og ef staðan er svona meðal íslenskra drengja – hvernig er hún þá meðal barna sem eru af erlendu bergi brotin? Hversu hörmulega höfum við þá brugðist þeim og framtíðarmöguleikum þeirra?Gullaldarlið Fylkis varð Íslandsmeistari í knattspyrnu árið 1986.Kynjamunur af þessu tagi er algengur á hnignandi jaðarsvæðum um víða veröld. Þar sem strákarnir ætla sér beint í skógarhöggið, verksmiðjuna eða námuna en stelpurnar sjá menntun sem leið til að komast burt og ná sér í maka og betra líf annarsstaðar. En þessi munur sést hér í Reykjavík – þar sem engin augljós störf bíða þeirra sem ekki afla sér menntunar. Stelpurnar hljóta þá að fara ef strákarnir hafa tekið ákvörðun um að verða andlegir eftirbátar þeirra. Það má velta fyrir sér hvort óbeit á jafnréttisbaráttu sem hefur verið ríkjandi hjá ungum strákum megi túlka sem ómeðvituð viðbrögð við þessu ástandi. Fylkir hefur verið í fyrstu deild frá árinu 1999 – liðið hefur verið hársbreidd frá Íslandsmeistaratitli en bikartitilinn hafa þeir unnið í tvígang. Uppistaðan í því liði var gullaldarliðið frá 1986 – Kiddi, Tóti, Gunni og Finnur ásamt yngri strákum sem litu upp til þeirra. Einhver gæti sagt að gott fótboltalið sé óhjákvæmilegt í barnmörgu og vaxandi hverfi – en sú er alls ekki raunin. Breiðholtið er stærra en Árbærinn og þar hefur sami árangur ekki náðst. Gullaldarstrákarnir urðu ekki svona góðir vegna þess að það voru leikfimitímar í Árbæjarskóla. Sigursteinn var frábær kennari – en það þarf meira til ef menn vilja skara framúr. Þennan árangur má fyrst og fremst þakka áhuga foreldra og endalausri sjálfboðavinnu hugsjónamanna sem störfuðu fyrir Fylki. Áhugi fjölmiðla var strákunum hvatning, heilsíður í DV og Mogga skiptu máli. Aðstaða þeirra til æfinga var ekkert til að hrópa húrra fyrir – þótt rauðamölin væri óvenju góður malarvöllur var aðstaðan stórbætt með samhentu átaki. Allt bendir til þess að sambærilega vinnu þurfi í samfélaginu öllu til að tryggja læsi og lestur. Strákarnir þurfa fyrirmyndir og hvatningu – ekki síst heima hjá sér, ekki síst frá feðrum sínum og þeir þurfa góðar bækur. Ég hef stundum spurt fólk: Hvað heita mest lesnu bækur á Íslandi? Yfirleitt hefur fólk svarað: Símaskráin? Biblían? Arnaldur? En mest lesnu bækur á Íslandi hafa sjaldan fengið umfjöllun í fjölmiðlum og þær fá aldrei dóma. Þær heita nöfnum eins og Sproti, Glimrende, Matrix, Mályrkja, Lífheimurinn, Glói Geimvera. Ég hef aldrei séð umfjöllun um þessar bækur, aldrei séð sérfræðinga eða kennara velta fyrir sér hvort þær teljist góðar eða slæmar, skemmtilega eða leiðinlega skrifaðar. Hvort þær séu úreltar, hvort þær mættu vera fleiri og fjölbreyttari og hvaða höfundar eru bestir. Ætla má að 40.000-60.000 börn lesi bók sem er notuð í 10-20 ár. Á meðan Arnaldur semur nýja bók á hverju ári þykir æskilegt að nýta kennslubækur sem lengst, það hefur þótt óþarfa kostnaður að semja og prenta bók fyrr en gamla upplagið er dottið í sundur. Það var til dæmis áfall þegar Berlínarmúrinn féll og allar landafræðibækur urðu úreltar. Ef eitthvað er verra en sögulegur atburður sem eyðileggur sögubækurnar þá eru það ungir fræðimenn sem kollvarpa gömlum sannindum. Skólabækurnar eru aldrei settar í samhengi við góðan eða slakan árangur í alþjóðlegum könnunum. Hvaða bækur nota þjóðir sem standa sig best? Við ræðum aldrei hvaða viðmið við eigum að nota þegar kemur að menntun. Hver skilgreinir hvað börn eiga að vita og kunna? Furðufiskar og lífríkið í hafinu kringum Ísland ætti að vera örvandi fyrir ímyndunaraflið. Ættu 10 ára krakkar á Íslandi ekki að hafa æði fyrir fiskum eða hvölum? Þeir ættu allir að vilja verða kafarar og sjávarlíffræðingar. Eða hvað? Ákvað einhver að þeir ættu ekki að hafa áhuga? Eða erum við almennt hlutlaus og meðvitundarlaus um menningarheim barna og unglinga? Eldvirkni og eldgos síðustu ára ættu að fylla þá löngun til að verða jarðfræðingar og vísindamenn. Íslendingasögurnar og bókmenntirnar eiga að fylla þá draumum um að verða skáld eða fornleifafræðingar. Hversu margar bækur ættu grunnskólakrakkar að fá til eignar? Hvort myndi duga þeim lengur – ipad eða 300 blaðsíðna bók í lit um allt sem viðkemur eldgosum, regnskógum og furðufiskum? Strákarnir okkar hafa tileinkað sér margt í nútímatækni og heimurinn er fullur af spennandi tækifærum og flottum græjum. Séu þær notaðar rétt geta þær gert okkur læsari, klárari og auðugri menningarlega. Þær gefa okkur áður óþekkt vald til að skapa og miðla. Möguleikar til að fræðast um heiminn og tengjast fólki um víða veröld eru meiri en nokkru sinni fyrr. En mikilvægustu upplýsingarnar eru ekki á Youtube. Sá sem ekki hefur þjálfað sig í lestri hefur takmarkaðan aðgang að heimi vísinda, tækni og heimspeki. Aðgangur að trúarbrögðum, ljóðlist og hugmyndasögu heimsins verður lítill sem enginn. Ef Ísland á að eignast góða kennara, eðlisfræðinga, hjúkrunarfræðinga og verkfræðinga verðum við að vera læs og víðlesin. Læsi er lykillinn að erlendum tungumálum, án læsis getum við ekki ræktað okkar eigin sögu, tungu og menningu. Án færni í eigin móðurmáli er erfitt að miðla hugsunum sínum og hugmyndum í rituðu og mæltu máli. Margir hafa spjarað sig í lífinu ólæsir – en þessi hópur sem nú mælist illa læs er svo stór að það má líkja ástandinu við áskapaða fötlun eða vítavert sinnuleysi. Í þessum fjórðungi stráka sem ekki geta lesið sér til gagns liggur stærsta vannýtta auðlind þjóðarinnar – tækifærin eru svo mörg að þau fylla heilu bókasöfnin. Ef ekki er brugðist við af krafti blasir við að strákarnir okkar og þjóðin öll – falli niður í þriðju deild. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson Skoðun Sættir þú þig við þetta? Jón Pétur Zimsen Skoðun Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Miðflokkurinn – Rödd skynseminnar í borginni Ómar Már Jónsson skrifar Skoðun Virði barna og ungmenna Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Sættir þú þig við þetta? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Alþingi gleymir aftur fötluðum börnum Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lægri gjöld, fleiri tækifæri Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Tölum um stóra valdaframsalsmálið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar Skoðun Öflugar varnir krefjast stöndugra fréttamiðla Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Gott frumvarp, en hvað með verklagið? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson skrifar Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag Bolli Héðinsson skrifar Skoðun „Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum Eyrún Arnarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál Grímur Atlason skrifar Skoðun Í vörn gegn sjálfum sér? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks skrifar Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar
Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar
Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar
Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar
Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar