Skoðun

Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir í fullu fjöri

Eva Einarsdóttir skrifar
Þessa dagana fer fram skemmtilegt og metnaðarfullt alþjóðlegt íþróttamót í Reykjavík, Reykjavík International Games. Eru þessir mikilvægu leikar nú haldnir í fimmta sinn fyrir íslenskt og erlent íþróttafólk og hefur þátttakan aldrei verið meiri. Um 400 erlendir keppendur og gestir eru komnir til landsins í tengslum við mótið.

Upphaf Reykjavíkurleikanna má rekja til ársins 2007 þegar haldið var alþjóðlegt íþróttamót í Reykjavík fyrir ungmenni. Í kjölfarið sáu skipuleggjendur, Íþróttabandalag Reykjavíkur og aðrir innan íþróttahreyfingarinnar, að kunnáttan og metnaðurinn væru til staðar til að standa að árlegu móti. Árangurinn hefur svo sannarlega sýnt fram á að leikarnir eru komnir til að vera.

Reykjavíkurborg og Íþrótta- og tómstundarráð Reykjavíkur eru stolt af þessum frábæra vettvangi fyrir íþróttafólk. Borgin leggur metnað sinn í að í Reykjavík sé blómlegt íþróttalíf og fjölbreytnin skiptir þar miklu máli. Í ár er keppt í sextán ólíkum greinum á þessu fyrsta stórmóti ársins. Á meðal greina má nefna; sund, skylmingar, keilu, kraftlyftingar, samkvæmisdans og badminton. Í þremur af þessum greinum keppa fatlaðir íþróttamenn og vonandi á þátttaka þeirra bara eftir að aukast.

Á leikunum keppa margir af okkar bestu íþróttamönnum og þarna taka líka sumir íþróttamenn sín fyrstu skref sem þátttakendur í alþjóðlegu móti.

Í tengslum við Reykjavíkurleikana var á fimmtudaginn haldin vegleg ráðstefna um afreksíþróttir fyrir íþróttafólk, þjálfara og aðra áhugasama. Í gærkvöldi var síðan blásið til glæsilegrar opnunarhátíðar. Í kvöld verður svo hið frábæra sundlaugarpartý í Laugardalslauginni þar sem þátttakendur og allir aðrir eru hjartanlega velkomnir.

Í sumum keppnisgreinum leikanna gefst kostur á að vinna sig upp á heimslistum. Í ljósi þess að að Ólympíuleikar eru haldnir í ár þá getur gott gengi á Reykjavíkurleikunum gert gæfumuninn fyrir suma.

Að baki góðs árangurs keppenda eru strangar æfingar – blóð, sviti og tár eins og stundum er talað um. Vinátta og gleði eru ekki síður mikilvægur hluti leikanna.

Ég vil nota tækifærið og þakka starfsfólki Íþróttabandalags Reykjavíkur, ÍBR, og öllum sem tekið hafa þátt í skipulagningu leikanna um leið og ég óska öllum þátttakendum góðs gengis. Þið lýsið upp þennan dimma tíma ársins með þátttöku ykkar og dugnaði.




Skoðun

Sjá meira


×