Kaupa allt að 100 milljónir evra 14. janúar 2012 12:00 Bankinn vinnur nú að áætlun sinni um hvernig losa megi gjaldeyrishöft. Fréttablaðið/pjetur
Seðlabanki Íslands hefur auglýst fyrsta krónuútboð sitt í tengslum við áætlun um afnám gjaldeyrishafta frá því í ágúst. Útboðið verður haldið 15. febrúar og er tvískipt. Annars vegar býðst bankinn til þess að kaupa evrur í skiptum fyrir krónur, samkvæmt fjárfestingarleiðinni svokölluðu, og hins vegar í skiptum fyrir verðtryggð ríkisskuldabréf. Bankinn hyggst kaupa allt að 100 milljónir evra í útboðunum tveimur fyrir allt að 240 krónur fyrir evruna. Útboðsgengi ræðst þó vitaskuld af tilboðum þátttakenda. Seðlabankinn mun standa fyrir gjaldeyrisútboðum þar sem hann kaupir erlendan gjaldeyri í skiptum fyrir krónur. Þannig gefst eigendum aflandskróna tækifæri til að nota þær til fjárfestinga hér. Á móti kaupir Seðlabankinn gjaldeyri til að áhrifin á gjaldeyrisforða bankans verði engin. Í Morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka í gær kom fram að Seðlabankinn þyrfti að kaupa til baka sem nemur um 130 milljónum evra til að bæta sér upp útflæði úr gjaldeyrisforðanum. Vega þar þyngst gjaldeyrisútboð bankans og kaup á ríkisbréfum af erlendum aðila í desember fyrir 18,5 milljarða króna.- mþl
Mest lesið Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Fleiri fréttir Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Sjá meira