Lokun öldrunarlækningadeildar Erla Linda Bjarnadóttir og Ingibjörg Hulda Björnsdóttir skrifar 12. janúar 2012 06:00 Starfsemi deildarinnar hefur þjónað öldruðum íbúum Akraness og nágrennis um áratuga skeið. Meginhlutverk starfseminnar er að veita umönnun, hjúkrun og lækningu á sviði öldrunar. Lögð er áhersla á endurhæfingu aldraðra. Í dag eru á deildinni 14 legurými sem skiptast í þrjú rými fyrir endurhæfingarsjúklinga, eitt fyrir hvíldarinnlagnir og 10 rými fyrir skammtíma- og langtímainnlagnir. Endurhæfing: Sýnt hefur verið fram á að endurhæfing þar sem skjólstæðingar fara í endurhæfingaráætlun eykur færni aldraðra og bætir andlega líðan þeirra svo um munar og gerir þeim kleift að búa lengur á heimilum sínum. Hvíldarinnlagnir: Þjóna þeim einstaklingum sem hafa með aðstoð ættingja getað búið heima. Mikið álag hvílir á herðum ættmenna sem hjúkra öldruðum og veikum einstaklingum. Með þessu fyrirkomulagi er þeim einnig gert kleift að búa lengur heima. Skammtíma- og langtímainnlagnir: Eru fyrir einstaklinga sem hafa fengið vistunarmat og bíða vistunar á öðrum öldrunarstofnunum. Sumir þeirra hafa dvalið á deildinni í langan tíma vegna þess að hjúkrunar- og dvalarheimilisrými hafa ekki verið nægilega mörg til þess að mæta vaxandi þörf. Kemur eitthvað annað í staðinn?Með þessum upplýsingum viljum við vekja bæjarbúa og íbúa á Vesturlandi til umhugsunar um hvað lokun á deildinni hefur að segja fyrir landshlutann allan. Á síðastliðnu ári þjónustaði deildin 105 einstaklinga og eru þá ótaldir þeir ættingjar sem njóta þjónustu um leið. Með lokuninni mun endurhæfing fyrir fólk með skerta getu til að sinna þáttum daglegs lífs verða felld niður í þeirri mynd sem hún er núna. Hvíldarinnlagnir verða færðar á aðrar deildir stofnunarinnar ásamt skammtíma- og langtímainnlögnum með öllum þeim óþægindum sem því fylgir fyrir alla sem að þessum málum koma. Ekkert annað þjónustustig innan heilbrigðiskerfisins getur komið í staðinn fyrir þá þjónustu sem öldruðum er veitt á sérhæfðum öldrunarlækningadeildum. Á deildinni starfar metnaðarfullur og samheldinn hópur sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga ásamt öðru starfsfólki. Starfsfólkið hefur lagt metnað sinn í að sækja sér þekkingu í formi símenntunar skjólstæðingunum til hagsbóta. Meirihluti starfsfólksins hefur áratuga reynslu af umönnum aldraðra og hefur leitast við að veita þeim og fjölskyldum þeirra góða þjónustu. Atvinnumissir og áhrif á fjölskyldur á AkranesiÞann 1. febrúar nk. standa hátt í þrjátíu konur með uppsagnarbréf í höndunum. Þessi ráðstöfun hefur áhrif á líf og afkomu hátt í eitt hundrað einstaklinga á Akranesi sem tengjast þessu starfsfólki fjölskylduböndum auk hinna öldruðu og aðstandenda þeirra. Nýbygging á Dvalarheimilinu Höfða er því miður ekki ljós í myrkrinu. Ekki er fyrirséð að þar verði fjölgun á störfum né rýmum í náinni framtíð, þrátt fyrir viðbyggingu, því hún er eingöngu ætluð til þess að skapa einbýli fyrir heimilisfólkið sem fyrir er. Heimahjúkrun mun varla ráða við fjölgun sjúklinga í heimahúsum því álag er mikið á þeirri þjónustu fyrir og engin umræða er um að ráða bót á því. Það segir sig sjálft að skerðing á þjónustu við aldraða á Vesturlandi er óumflýjanleg þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnenda HVE um að svo verði ekki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Ofbeldislýður í sauðagæru Huginn Þór Grétarsson Skoðun ASÍ er látið niðurgreiða laun formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Íslenska sem annað mál í Ísafjarðarbæ – spurningar til allra frambjóðanda til sveitastjórnarkosninga vorið 2026 Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun Aðför að einkabílnum hættir? Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Ég er ekki torfkofamatur Rakel Hinriksdóttir Skoðun Hvert stefnir Bláskógabyggð? Valdís María Smáradóttir Skoðun Ég ætlaði mér aldrei að verða leikskólakennari Ásta Möller Sívertsen Skoðun Blár, rauður, gulur og C+ Jón Pétur Zimsen Skoðun Brothætta karlmennskan sem óttast regnbogafána Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ég ætlaði mér aldrei að verða leikskólakennari Ásta Möller Sívertsen skrifar Skoðun Öryggi í skipulagi – nauðsynleg uppfærsla Böðvar Tómasson skrifar Skoðun Við þurfum að geta tekið samtalið því orð eru til alls fyrst og athafnir næsta skrefið Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. skrifar Skoðun Látum fiskhjallana standa Hrafn Ægir Bergsson skrifar Skoðun Frá orðum til aðgerða – Málefni fatlaðs fólks í Hafnarfirði Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Hættum að tala um sameiningu! Liv Aase Skarstad skrifar Skoðun Borgarlínublekkingar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Íslenska sem annað mál í Ísafjarðarbæ – spurningar til allra frambjóðanda til sveitastjórnarkosninga vorið 2026 Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Aukum nærþjónustu í Urriðaholti Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Ég er ekki torfkofamatur Rakel Hinriksdóttir skrifar Skoðun Aðför að einkabílnum hættir? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Heimur án höggdeyfis Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Börnin í fyrsta sæti Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Setjum lakk á litlaputta og segjum um leið ÉG LOFA Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Sumarið kemur alltaf á óvart í Kópavogi Hildur María Friðriksdóttir,Örn Arnarson skrifar Skoðun ESB umræðan: hver hagnast á því að gefa leikinn áður en hann byrjar? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Kópavogsmódelið er lausn sem virkar Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldislýður í sauðagæru Huginn Þór Grétarsson skrifar Skoðun Aðlögun er hluti af aðildarferlinu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Já í ágúst getur gefið gott tækifæri til að tryggja betur lífsgæði komandi kynslóða Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Takk fyrir lánið, Elliðaárdalur! Heiða Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Lesblindir og tæki skólanna Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Foreldrahús – enn eitt fórnarlamb ríkisstjórnarinnar Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Sparnaður eða sóun? Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Símenntun er nauðsyn – ekki lúxus Fríða Rós Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Blár, rauður, gulur og C+ Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við erum að sýna börnunum okkar virðingarleysi – og þau finna það Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Bjartsýni í boði Sigurður Vopni Vatnsdal skrifar Sjá meira
Starfsemi deildarinnar hefur þjónað öldruðum íbúum Akraness og nágrennis um áratuga skeið. Meginhlutverk starfseminnar er að veita umönnun, hjúkrun og lækningu á sviði öldrunar. Lögð er áhersla á endurhæfingu aldraðra. Í dag eru á deildinni 14 legurými sem skiptast í þrjú rými fyrir endurhæfingarsjúklinga, eitt fyrir hvíldarinnlagnir og 10 rými fyrir skammtíma- og langtímainnlagnir. Endurhæfing: Sýnt hefur verið fram á að endurhæfing þar sem skjólstæðingar fara í endurhæfingaráætlun eykur færni aldraðra og bætir andlega líðan þeirra svo um munar og gerir þeim kleift að búa lengur á heimilum sínum. Hvíldarinnlagnir: Þjóna þeim einstaklingum sem hafa með aðstoð ættingja getað búið heima. Mikið álag hvílir á herðum ættmenna sem hjúkra öldruðum og veikum einstaklingum. Með þessu fyrirkomulagi er þeim einnig gert kleift að búa lengur heima. Skammtíma- og langtímainnlagnir: Eru fyrir einstaklinga sem hafa fengið vistunarmat og bíða vistunar á öðrum öldrunarstofnunum. Sumir þeirra hafa dvalið á deildinni í langan tíma vegna þess að hjúkrunar- og dvalarheimilisrými hafa ekki verið nægilega mörg til þess að mæta vaxandi þörf. Kemur eitthvað annað í staðinn?Með þessum upplýsingum viljum við vekja bæjarbúa og íbúa á Vesturlandi til umhugsunar um hvað lokun á deildinni hefur að segja fyrir landshlutann allan. Á síðastliðnu ári þjónustaði deildin 105 einstaklinga og eru þá ótaldir þeir ættingjar sem njóta þjónustu um leið. Með lokuninni mun endurhæfing fyrir fólk með skerta getu til að sinna þáttum daglegs lífs verða felld niður í þeirri mynd sem hún er núna. Hvíldarinnlagnir verða færðar á aðrar deildir stofnunarinnar ásamt skammtíma- og langtímainnlögnum með öllum þeim óþægindum sem því fylgir fyrir alla sem að þessum málum koma. Ekkert annað þjónustustig innan heilbrigðiskerfisins getur komið í staðinn fyrir þá þjónustu sem öldruðum er veitt á sérhæfðum öldrunarlækningadeildum. Á deildinni starfar metnaðarfullur og samheldinn hópur sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga ásamt öðru starfsfólki. Starfsfólkið hefur lagt metnað sinn í að sækja sér þekkingu í formi símenntunar skjólstæðingunum til hagsbóta. Meirihluti starfsfólksins hefur áratuga reynslu af umönnum aldraðra og hefur leitast við að veita þeim og fjölskyldum þeirra góða þjónustu. Atvinnumissir og áhrif á fjölskyldur á AkranesiÞann 1. febrúar nk. standa hátt í þrjátíu konur með uppsagnarbréf í höndunum. Þessi ráðstöfun hefur áhrif á líf og afkomu hátt í eitt hundrað einstaklinga á Akranesi sem tengjast þessu starfsfólki fjölskylduböndum auk hinna öldruðu og aðstandenda þeirra. Nýbygging á Dvalarheimilinu Höfða er því miður ekki ljós í myrkrinu. Ekki er fyrirséð að þar verði fjölgun á störfum né rýmum í náinni framtíð, þrátt fyrir viðbyggingu, því hún er eingöngu ætluð til þess að skapa einbýli fyrir heimilisfólkið sem fyrir er. Heimahjúkrun mun varla ráða við fjölgun sjúklinga í heimahúsum því álag er mikið á þeirri þjónustu fyrir og engin umræða er um að ráða bót á því. Það segir sig sjálft að skerðing á þjónustu við aldraða á Vesturlandi er óumflýjanleg þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnenda HVE um að svo verði ekki.
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Íslenska sem annað mál í Ísafjarðarbæ – spurningar til allra frambjóðanda til sveitastjórnarkosninga vorið 2026 Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Skoðun Ísland á krossgötum: Er kominn tími til að velja öryggi fram yfir óvissu? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við þurfum að geta tekið samtalið því orð eru til alls fyrst og athafnir næsta skrefið Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. skrifar
Skoðun Frá orðum til aðgerða – Málefni fatlaðs fólks í Hafnarfirði Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar
Skoðun Íslenska sem annað mál í Ísafjarðarbæ – spurningar til allra frambjóðanda til sveitastjórnarkosninga vorið 2026 Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun ESB umræðan: hver hagnast á því að gefa leikinn áður en hann byrjar? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Já í ágúst getur gefið gott tækifæri til að tryggja betur lífsgæði komandi kynslóða Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Við erum að sýna börnunum okkar virðingarleysi – og þau finna það Ingibjörg Einarsdóttir skrifar
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Íslenska sem annað mál í Ísafjarðarbæ – spurningar til allra frambjóðanda til sveitastjórnarkosninga vorið 2026 Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun