Jafnmargir símar seldir og árið 2007 3. janúar 2012 06:00 Ætla má að mikil aukning í sölu snjallsíma valdi því að flutningur á gagnamagni aukist mikið á næstu misserum. Fréttablaðið/pjetur
Síminn seldi jafnmarga síma fyrir jólin og það gerði árið 2007. Þá var meðalverð seldra síma hjá fyrirtækinu tvöfalt hærra en fyrir fjórum árum. Endurspeglar sú staðreynd aukna markaðshlutdeild snjallsíma en 67 prósent seldra síma fyrir jólin voru snjallsímar. „Við fáum ekki betur séð en að fólk hafi verið tilbúið að eyða meiri fjármunum í símana nú en þá,“ segir Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, og bætir því við að hlutfall snjallsíma af seldum símum hafi tvöfaldast milli ára. Þá bendir Margrét á að næstsöluhæsti síminn hjá fyrirtækinu hafi verið Samsung Galaxy S II sem kosti tæplega 100 þúsund krónur. Galaxy-síminn er keyrður á Android snjallsíma-stýrikerfinu sem Google stendur á bakvið. Sérstaka athygli vekur að símar sem notast við Android-stýrikerfið voru 56 prósent seldra síma fyrir jólin samanborið við 15 prósent fyrir ári. Í fréttatilkynningu frá Símanum segir að lokum að þegar þessi mikli vöxtur í sölu á snjallsímum sé skoðaður í samhengi við netnotkun megi ætla að flutningur á gagnamagni aukist mikið á næstu misserum. - mþl
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent