Innlent

Nýtt ráðuneyti í ár og kvótamál kláruð

Steingrímur J. Sigfússon segir erilsaman tíma fram undan í þinginu. Öll stóru málin sem ríkisstjórnin hyggist ná fram á kjörtímabilinu séu nú komin fram.fréttablaðið/gva
Steingrímur J. Sigfússon segir erilsaman tíma fram undan í þinginu. Öll stóru málin sem ríkisstjórnin hyggist ná fram á kjörtímabilinu séu nú komin fram.fréttablaðið/gva
Öll eða velflest stóru málin sem ríkisstjórnin ætlar sér að koma í framkvæmd á kjörtímabilinu eru komin fram á Alþingi. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon sem segir næsta þing munu litast af því að kosningar verði í nánd.

Alþingi kemur saman að nýju á mánudaginn og þess bíða fjölmörg stór mál. Meðal þeirra má nefna stofnun atvinnuvega- og umhverfis- og auðlindaráðuneytis, breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða og breytingar á stjórnarskrá, svo eitthvað sé nefnt.

Nokkuð hefur verið gagnrýnt að ríkisstjórnin hafi lagt fram mikið af stórum málum skömmu fyrir lokafrest framlagningar nýrra mála. Steingrímur segir menn þá horfa framhjá því að fresturinn var settur við 1. apríl til að þingið hefði tíma til að fjalla um málið. Áður hefðu stórmál komið fram rétt fyrir þinglok.

„Þetta er líka til marks um að þetta er starfsöm ríkisstjórn og það hefur verið mikið af stórum málum í vinnslu. Það er ekki skrítið að núna á þriðja starfsári stjórnarinnar komi fram mikið af stórum málum sem hafa verið lengi í undirbúningi."

Steingrímur segir að forgangsraða þurfi þeim málum sem klárast eiga á þessu þingi. Þar sem enginn septemberstubbur sé lengur samkvæmt þingsköpum verði að endurflytja þau mál í haust sem ekki klárast í vor.

Steingrímur segir stefnt að því að nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi taki gildi fyrir næsta kvótaár, sem hefst 1. september. „Vinnan við það er komin á forræði atvinnuveganefndar og ráðuneytið mun aðstoða við hana eins og með þarf. Nú eru menn að skylmast um veiðigjöldin, sem er í sjálfu sér mjög skiljanlegt og gott að rökræða þau mál."

Ríkisstjórnin hefur gert þó nokkrar breytingar á stjórnarráðinu og síðasta spilið í því púsli verður sameining ráðuneyta Steingríms, efnahags- og viðskiptaráðuneytisins að hlut við sjávarútvegs- og landbúnaðar og iðnaðarráðuneyti í eitt atvinnuvegaráðuneyti. Auk þess verður umhverfisráðuneytið styrkt sem umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Steingrímur vonast til að þessar breytingar nái í gegn á árinu.

kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×