Nýtt ráðuneyti í ár og kvótamál kláruð 10. apríl 2012 09:30 Steingrímur J. Sigfússon segir erilsaman tíma fram undan í þinginu. Öll stóru málin sem ríkisstjórnin hyggist ná fram á kjörtímabilinu séu nú komin fram.fréttablaðið/gva
Öll eða velflest stóru málin sem ríkisstjórnin ætlar sér að koma í framkvæmd á kjörtímabilinu eru komin fram á Alþingi. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon sem segir næsta þing munu litast af því að kosningar verði í nánd. Alþingi kemur saman að nýju á mánudaginn og þess bíða fjölmörg stór mál. Meðal þeirra má nefna stofnun atvinnuvega- og umhverfis- og auðlindaráðuneytis, breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða og breytingar á stjórnarskrá, svo eitthvað sé nefnt. Nokkuð hefur verið gagnrýnt að ríkisstjórnin hafi lagt fram mikið af stórum málum skömmu fyrir lokafrest framlagningar nýrra mála. Steingrímur segir menn þá horfa framhjá því að fresturinn var settur við 1. apríl til að þingið hefði tíma til að fjalla um málið. Áður hefðu stórmál komið fram rétt fyrir þinglok. „Þetta er líka til marks um að þetta er starfsöm ríkisstjórn og það hefur verið mikið af stórum málum í vinnslu. Það er ekki skrítið að núna á þriðja starfsári stjórnarinnar komi fram mikið af stórum málum sem hafa verið lengi í undirbúningi." Steingrímur segir að forgangsraða þurfi þeim málum sem klárast eiga á þessu þingi. Þar sem enginn septemberstubbur sé lengur samkvæmt þingsköpum verði að endurflytja þau mál í haust sem ekki klárast í vor. Steingrímur segir stefnt að því að nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi taki gildi fyrir næsta kvótaár, sem hefst 1. september. „Vinnan við það er komin á forræði atvinnuveganefndar og ráðuneytið mun aðstoða við hana eins og með þarf. Nú eru menn að skylmast um veiðigjöldin, sem er í sjálfu sér mjög skiljanlegt og gott að rökræða þau mál." Ríkisstjórnin hefur gert þó nokkrar breytingar á stjórnarráðinu og síðasta spilið í því púsli verður sameining ráðuneyta Steingríms, efnahags- og viðskiptaráðuneytisins að hlut við sjávarútvegs- og landbúnaðar og iðnaðarráðuneyti í eitt atvinnuvegaráðuneyti. Auk þess verður umhverfisráðuneytið styrkt sem umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Steingrímur vonast til að þessar breytingar nái í gegn á árinu. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira