Jarðskjálftar höfðu áhrif á hús í Hveragerði Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 22. apríl 2012 18:48
Smáskjálftavirknin við Hellisheiðarvirkjun síðasta haust hafði áhrif á hús í Hveragerði og ekki er hægt að útiloka að stærstu skjálftarnir hafi valdið skemmdum. Þetta eru niðurstöður greiningar sem unnin var á skjálftunum. Á annað hundrað skjálfta hafa mælst við virkjunina síðastliðinn sólahring. Mikil jarðskjálftavirkni var við Hellisheiðarvirkjun í gærkvöldi og í nótt og fundu íbúar í Hveragerði fyrir skjálftunum. Flestir skjálftarnir voru litir eða aðeins um einn að stærð. Tveir skjálftar voru þó stærri eða um þrír. Skjálftarnir nú eru á sama stað og mikli skjálftavirkni var síðusta haust. Þá mældustu þúsundir jarðskjálfta á nokkrum vikum eftir að Orkuveitan hóf að dæla affallsvatni frá Hellisheiðarvirkjun niður í sprungur á svæðinu. Við niðurdælinguna myndast þrýstingur sem kemur jarðskjálftunum af stað. Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftafræði vann greiningu á smáskjálftahrinunni sem varð við Hellisheiðarvirkjun síðasta haust. Tveir stærstu skjálftarnir sem þá mældust voru um fjórir að stærð. Greiningin sýnir að skjálftahrinan hafði áhrif á hús í bænum. „Þessir tveir jarðskjálftar, þeir stærstu, höfðu vissalega áhrif á húsin og ollu talsverðu og umtalsverðu jarðskjálftaálagi á húsinu. Það miklu að það er ekki hægt að útiloka skemmdir af þeirra völdum." Benedikt segir flesta skjálftana hafa verið mjög lita en stærð þessara tveggja stóru skjálfta veki athygli þar sem um manngerða skjálfta er að ræða. „Þetta eru stærstu manngerðu jarðskjálftar sem hafa orðið hér á landi og þó víðar væri leitað. Þetta er komið mjög hátt á heimsmælikvarða miðað við það sem þekkist." Þá segir Benedikt þurfa að hafa í huga að mannvirkin í Hveragerði hafi þurft að þola mikið álag í skjálftunum 2008 „Þrátt fyrir að langflest hús hafi staðist þá áraun vel þá var þetta mikið álag á burðarvirkin og það er óvíst hver áhrif svona lítilla skjálfta eru á hús sem hafa þurft að þola slíkt álag. Það er munur á nýbyggðu húsi og sem hefur þurft að fara í gegnum svona áraun," segir Benedikt að lokum.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Vara við nálum í hrekkjavökunammi Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Fleiri fréttir Feðgar séu í haldi í tengslum við málið þar sem maður lést Vara við nálum í hrekkjavökunammi „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Sjá meira