Birgir Leifur á litla sem enga möguleika Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. nóvember 2012 22:42 Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd/Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG á afar litla möguleika á því að komast áfram á þriðja stig úrtökumótsins fyrir PGA-mótaröðina eftir að hann lék þriðja hringinn í Flórída á 70 höggum í dag. Birgir Leifur er í 67. sæti fyrir lokadaginn en tuttugu efstu kylfingarnir komast áfram. Birgir Leifur lék þriðja hringinn á einu höggi undir pari og er á pari eftir 54 holur. Hann lék einnig fyrsta hringinn á 70 höggum en var tveimur höggum yfir pari á degi tvö. Birgir Leifur spilaði vel á sextán af átján holum dagsins en holur 9 og 18 voru honum dýrkeyptar. Birgir Leifur tapaði þremur höggum á þessum tveimur holum en lék hinar sextán holur hringsins á fjórum höggum undir pari. Kylfingarnir í 16. til 24. sæti hafa leikið þrjá fyrstu hringina á átta höggum undir pari og því þarf okkar maður á kraftaverki að halda til þess að komast í gegnum annað stigið og halda draumi sínum á lífi um að komast inn á PGA-mótaröðina.
Golf Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira