Allir starfsmenn IKEA í heiminum fá bónus 20. janúar 2012 07:39
Ingvar Kamprad stofnandi og aðaleigandi IKEA verslunarkeðjunnar segir að allir 126.000 starfsmenn IKEA í heiminum, þar á meðal á Íslandi, eigi að fá bónusa í samræmi við árangur keðjunnar. Þetta kemur fram í viðtali við Kamprad í sænska blaðinu Expressen. Kamprad segir að allir eigi að fá þennan bónus og allir eigi að fá sömu upphæð. Bónusinn yrði bundinn beint við hagnaðinn hjá Ingka Holdings sem er eignarfélag IKEA í Hollandi. Bónusupphæðin liggur ekki á hreinu en rætt er um 8.000 sænskar krónur á mann eða tæplega 150.000 krónur á þessu ári. Samkvæmt upplýsingum frá Ikea á Íslandi kemur fram að það sé rétt að hafinn er undirbúningur á umbunarkerfi fyrir starfsmenn IKEA um allan heim og er það draumur stofnanda fyrirtækisins, Ingvars Kamprad, að hann geti komið á slíku kerfi áður en hann sest í helgan stein. Í árlegri jólaræðu sinni fyrir starfsmenn IKEA í Älmhult í Svíþjóð, sagði Ingvar Kamprad frá því að hann vinni að þróun slíks umbunarkerfis: „Draumur minn er – áður en ég ákveð að lokum að setjast í helgan stein! – að mér hafi tekist að koma á einhvers konar umbunarkerfi sem hagnist starfsmönnum okkar. Ég er enn að skoða nokkrar mismunandi leiðir og það er draumur minn að eftir nokkur ár í starfi muni sérhver starfsmaður IKEA fá einhvers konar aukaumbun fyrir framlag sitt. Sú umbun yrði aftur á móti að vera sú sama fyrir alla starfsmenn, óháð hvaða stöðu þeir gegni hjá fyrirtækinu. Ef mér tekst þetta, verður það síðasta stórfellda framlag mitt til IKEA okkar, fyrirtækis sem vill fara óhefðbundnar leiðir.“ Eins og fyrr segir er vinna við kerfið enn á frumstigi, og því ekki hægt að segja til um hvenær því yrði mögulega komið á, en IKEA á Íslandi myndi að sjálfsögðu fagna slíku framtaki, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu hér á landi.
Mest lesið Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fleiri fréttir Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira