Gerum gott enn betra, öllum til góða 11. janúar 2012 16:00 Bjarni Benediktsson er nýr aðstoðarframkvæmdastjóri þjónustusviðs Ingvars Helgasonar og B&L, þar sem rekið er eitt fullkomnasta fólksbílaverkstæði landsins. mynd/gva
Bjarni Benediktsson er nýr aðstoðarframkvæmdastjóri þjónustusviðs hjá Ingvari Helgasyni og B&L. Hann segir fyrirmyndarþjónustu vera í brennidepli hjá fyrirtækinu sem aldrei fyrr. „Þjónusta er einn af lykilþáttunum þegar kemur að vali á nýjum bíl, ekki síst til atvinnureksturs. Rekstraröryggi þarf að vera tryggt og þjónustan stöðug og fyrirsjáanleg,“ útskýrir Bjarni á einu fullkomnasta fólksbílaverkstæði landsins, sem búið er öllum þeim tæknibúnaði sem nýjustu bílarnir krefjast. „Við rekum í raun hátæknisjúkrahús bílaviðgerða. Neyðarþjónusta er starfrækt allan sólarhringinn árið um kring og einnig rekum við litla bílaleigu sem getur gripið inn í ef bílar eru stopp hjá viðskiptavinum,“ upplýsir Bjarni sem þekkir vel til í bílabransanum, því áður var hann framkvæmdastjóri þjónustusviðs Bifreiða & landbúnaðarvéla. Hann segir bílaflota landsins hafa elst hratt frá árinu 2008 og slíkt kalli á nýjar áherslur og lausnir. „Í dag kemur til okkar í þjónustu mun hærra hlutfall bíla sem ekki eru lengur í ábyrgð. Þannig höfum við sótt fram í varahlutum sem koma ekki beint frá bílaframleiðendum og náð að lækka varahlutaverð umtalsvert, þótt ávallt sé hugað vel að gæðum. Til að tryggja góða þjónustu koma varahlutir til okkar frá birgjum um allan heim á lágmarkstíma, enda okkar markmið að gera gott enn betra og fylgja þannig eftir metnaði okkar, öllum til góða.“
Mest lesið Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira