Kallað á gjaldtöku vegna skipakomu 26. mars 2012 02:00 Sævar Skaptason
Hugmyndir eru uppi um að leggja sérstakt gjald á farþega skemmtiferðaskipa sem rynni til umbóta í umhverfismálum. Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda, segir gistináttagjald í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða ásamt framlögum Ferðamálastofu til úrbóta í umhverfismálum, samtals um 150 milljónir króna, hvergi nærri hrökkva til að hlúa að auðlindinni sem dregur fólk til landsins. Á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) á fimmtudaginn benti Sævar á að í sumar væri von á 100.000 farþegum skemmtiferðaskipa til landsins. 500 króna gjald á hvern myndi þýða um 50 milljóna króna viðbótartekjur. Gunnar Rafn Birgisson, framkvæmdastjóri og eigandi Atlantik, sem sérhæfir sig í móttöku skemmtiferðaskipa, telur hins vegar hæpið að taka með þessum hætti út einn hóp ferðamanna. „Eigi að leggja á umhverfisskatta þá eiga þeir að leggjast jafnt á alla, sama hvort þeir koma til landsins með flugi eða skipum.“ Gunnar Rafn segir vert að hafa í huga að aukin skattheimta af ferðamönnum kunni að draga úr áhuga þeirra á að sækja landið heim. „Aukin skattheimta þýðir ekki endilega meiri tekjur.“ Hins vegar telur Gunnar eðlilegt að hluti skatttekna ríkisins af ferðaiðnaði renni til þess að byggja upp ferðamannastaði. Þannig mætti til dæmis með betra skipulagi og bættri aðstöðu á „gullna hringnum“ svokallaða dreifa álagi á staðina. - óká
Mest lesið Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Ofbeldi í garð fangavarða eykst Innlent Dettifoss komið til hafnar Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Sjá meira